Framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar í málum er varða líkamsrækt

Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar í málum er varða líkamsrækt þar sem samkeppnishömlur eru til staðar af hálfu opinberra aðila og í því ljósi að skoða hvort þörf sé á að setja skýrari reglur um framkvæmdina. Ritgerðin hefst á inngangskafla þar sem rannsókn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birgitta Líf Björnsdóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25499
Description
Summary:Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar í málum er varða líkamsrækt þar sem samkeppnishömlur eru til staðar af hálfu opinberra aðila og í því ljósi að skoða hvort þörf sé á að setja skýrari reglur um framkvæmdina. Ritgerðin hefst á inngangskafla þar sem rannsóknarefnið er kynnt og markaðurinn fyrir líkamsrækt kynntur fyrir lesanda. Annar kafli fjallar um markaðsskilgreiningar og farið er yfir hvernig markaðurinn hefur verið skilgreindur í framkvæmd. Í þriðja kafla er farið yfir málaframkvæmd er varðar opinberar samkeppnishömlur á sviði líkamsræktar og í fjórða kafla er gefin skýrari mynd af þeim samkeppnishömlum sem eru til staðar á markaðinum. Þar er einnig farið nánar yfir heimildir samkeppnisyfirvalda til íhlutunar í málum er varða opinberar samkeppnishömlur en þar ber helst að nefna 14. og 16. gr. samkeppnislaga. Samhengisins vegna er síðan farið yfir hvort fyrir sé að fara sambærilegum heimildum til íhlutunar í erlendri löggjöf. Í fimmta kafla er farið yfir beitingu heimildanna í framkvæmd og til gamans verður ljósi varpað á skoðanir þátttakenda markaðarins í opinberri umræðu í tengslum við framkvæmdina. Í lok fimmta kafla setur höfundur fram lausn sína sem snýr að því að setja skýrari reglur um framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar og tryggja með því heilbrigða samkeppni á líkamsræktarmarkaðinum. Í sjötta kafla eru loks helstu niðurstöður teknar saman. Við úrvinnsluna var að mestu notast við sett lög, fræðiskrif og ákvarðanir og úrlausnir samkeppnisyfirvalda. Höfundur komst að þeirri niðurstöðu að tilefni sé til að setja skýrari reglur um framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar í málum er varða líkamsrækt og skipulag á rekstri líkamsræktarstöðva í samstarfi við opinbera aðila og mæla fyrir um að notast skuli meira við opin útboð þegar opinber aðili hyggst leigja út húsnæði sitt undir líkamsrækt til að tryggja samkeppni og gagnsæi á markaðinum. The paper aims to shed light on the implementation of financial separation in cases concernig the fitness industry in Iceland when ...