Að kenna einhverfum börnum í almennum grunnskólum : „það þarf eitthvað verulega að breytast til þess að hugmyndafræðin gangi upp“

Skóli án aðgreiningar byggist á hugmyndafræði um jöfnuð allra barna til náms; þeim séu sköpuð jafngild tækifæri í skólum til þátttöku í námi og starfi. Viðhorf kennara til skóla án aðgreiningar skiptir miklu um hvernig til tekst við sjálfa framkvæmdina. Sveitarfélögum er skylt að veita sérfræðiþjónu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir 1973-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25188
Description
Summary:Skóli án aðgreiningar byggist á hugmyndafræði um jöfnuð allra barna til náms; þeim séu sköpuð jafngild tækifæri í skólum til þátttöku í námi og starfi. Viðhorf kennara til skóla án aðgreiningar skiptir miklu um hvernig til tekst við sjálfa framkvæmdina. Sveitarfélögum er skylt að veita sérfræðiþjónustu í skólum til að koma á móts við þau börn sem þarfnast sértækra úrræða og gera þeim þar með mögulegt að sækja sína heimaskóla. Ritgerðin segir frá eigindlegri rannsókn þar sem skoðuð var upplifun og viðhorf kennara í grunnskólum án aðgreiningar af því að kenna einhverfum börnum. Markmið rannsóknarinnar var að skoða kennslureynslu kennara af því að kenna einhverfum börnum og áhrifum meðröskunum einhverfu á starf þeirra. Einnig var skoðuð reynsla kennara af sérfræðiþjónustu skóla og viðhorf þeirra til hugmyndafræði skóla án aðgreiningar. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl í rýnihópum við tuttugu grunnskólakennara af höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni og var dreifing milli landshluta nokkuð jöfn. Flestir kennaranna höfðu tíu ára starfsreynslu eða meira. Tveir kennaranna voru jafnframt foreldrar einhverfra barna. Einn kennaranna var einnig í námi, einn lauk námi frá Háskólanum á Akureyri og aðrir frá Háskóla Íslands. Almennt telja kennararnir sig ekki menntaða til að vinna með einhverfum börnum, að þann þátt vanti í grunnnám þeirra. Því leggja þeir traust á þá sérfræðinga sem starfa á sérdeildum og námsverum, en annars leituðu kennarar til sérfræðiþjónustu sveitafélagsins. Einnig segja kennarar að umhverfið styður ekki við hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og því sé þungt að mæta þörfum einhverfra barna í almennum grunnskólum. The concept of inclusive education addresses the ideology that all children should enjoy equality of educational opportunity. All children should have equal opportunity to study at their local school. Attitude towards the ideology weighs greatly on how it is executed. This thesis describes a qualitative research viewing the experience and attitudes of elementary school teachers, with experience ...