Börn með geðhvörf í skóla : þekking á úrræðum fyrir ungmenni með geðhvörf : eigindleg athugun á tveimur skólastigum á Akureyri

Verkefnið er lokað til 25.6.2016. Markmið þessarar rannsóknar var að afla upplýsinga og þekkingar um úrræði fyrir börn með geðhvörf á tveimur skólastigum á Akureyri. Rannsóknin var eigindleg. Tekin voru einstaklingsviðtöl við sex einstaklinga á grunn– og framhaldsskólastigi; tvo umsjónarkennara, tvo...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Unnur Aðalheiður Kristjánsdóttir 1967-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25183
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 25.6.2016. Markmið þessarar rannsóknar var að afla upplýsinga og þekkingar um úrræði fyrir börn með geðhvörf á tveimur skólastigum á Akureyri. Rannsóknin var eigindleg. Tekin voru einstaklingsviðtöl við sex einstaklinga á grunn– og framhaldsskólastigi; tvo umsjónarkennara, tvo námsráðgjafa og tvo sálfræðinga. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fyrir utan sálfræðinga er þekking á geðhvörfum innan skólanna ekki mikil, sérstaklega ekki í grunnskólanum. Kennarar þekktu þó vel hvert þeir ættu að leita ef grunur um geðhvörf hjá barni vaknaði og námsráðgjafar og sálfræðingar vissu nokkuð vel hvert ferlið til hjálpar barninu væri. Viðmælendur voru sammála um að þeir myndu afla sér frekari upplýsinga um geðhvörf, eins og aðrar raskanir sem börn geta fengið, ef þeir fengju slíkan einstakling til sín. Innan grunnskólans fara öll mál barna í nemendaverndarráð sem hittist vikulega og í framhaldsskólanum er svipað ráð sem fer yfir mál nemenda. Allir viðmælendur voru sammála um að biðin eftir sálfræðiþjónustu, hvort sem var á fjölskyldudeild eða Sjúkrahúsi Akureyrar, væri allt of löng og allt of fáir sálfræðingar væru starfandi á hvorum stað fyrir sig. Eins minntust þeir á skort á barnageðlæknum við sjúkrahúsið, þó hið nýstofnaða BUG teymi væri til mikilla bóta. Munur var á viðhorfum viðmælenda til rannsóknarinnar eftir því á hvoru skólastiginu þeir voru. Flestir viðmælendur grunnskólans töldu sig ekki hafa mikið fram að færa þar sem börn væru svo sjaldan greind með geðhvörf á Íslandi en í framhaldsskólanum var annað viðhorf og einstaklingar með geðhvörf þekktari stærð. The objective of this research was to accumulate information and knowledge about the resources available for children with bipolar disorder on two school levels in Akureyri. The research was qualitative. Personal interviews were conducted with six individuals in elementary and junior college; two supervisory teachers, two school counsellors and two psychologists. The main results of the research show that among the staff of ...