Summary: | Eftirfarandi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknaráætlunarinnar er að undirbúa rannsókn til að kanna viðhorf og reynslu hjúkrunarfræðinga af umönnun við lífslok og mikilvægi þess að notast við meðferðarferli við umönnun deyjandi sjúklinga. Umönnun við lífslok er stór þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga og leggja þarf áherslu á persónulega umönnun og vönduð samskipti við bæði sjúklinga og aðstandendur. Umhverfi deyjandi sjúklinga er einnig stór þáttur og getur notalegt umhverfi aukið gæði meðferðar. Skortur á starfsfólki veldur álagi í starfi sem getur valdið streitu meðal hjúkrunarfræðinga og slakri umönnun sjúklinga. Fræðsla til hjúkrunarfræðinga virðist ekki vera nægjanleg og er því nauðsynlegt að auka fræðslu til að veita markvissari hjúkrun í lífslokameðferð. Notast verður við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst verður við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði. Gagna verður aflað með viðtölum þar sem notast verður við opnar spurningar. Viðtöl verða tekin við 10 hjúkrunarfræðinga sem starfað hafa við umönnun við lífslok á bráða-, lyflækninga- og öldrunardeildum. Höfundar telja að bæta þurfi þjónustu við deyjandi sjúklinga og aðstandendur þeirra auk þess sem bæta þarf starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á þessum vettvangi. Jafnframt þarf að skoða hvernig fræðsla um líknar- og lífslokameðferð er skipulögð og framkvæmd í námi hjúkrunarfræðinga hérlendis. Lykilhugtök: Hjúkrunarfræðingar, lífslokameðferð, meðferðarferli, umönnun, deyjandi, sjúklingar, aðstandendur. The following research proposal is a final thesis for a Bachelor of Science degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of the proposed study is to examine the attitudes and experiences of nurses in the field of end-of-life care and the importance of using guidelines in the care of the terminally ill patients. End-of-life care is a major factor in the nursing profession and personal care should be encouraged as well as quality communication with both patients and ...
|