Summary: | Í þessu verkefni er fjallað um grunnvatn á vatnasviði Tungnaár og samspil þess við rennsli árinnar. Rennsli Tungnaár var greint með aðfallsgreiningu og athugað hvort mögulegt sé að leggja mat á grunnvatnsforða árinnar í rauntíma. Landsvirkjun hefur í mörg ár vaktað grunnvatnsstöðu á svæðinu og voru þær mælingar bornar saman við einangrað grunnrennsli Tungnaár. Niðurstöður sýndu að töluverð fylgni var við vatnshæð í Hraunvötnum og grunnvatn norðan þeirra sýndi meiri fylgni við Tungnaá heldur en við Þórisvatn. Þetta staðfestir áhrif grunnvatnsstrauma, austan og sunnan við Þórisvatn, á rennsli Tungnaár. Grunnvatn sýndi einnig góða fylgni við úrkomu á svæðinu á ársgrundvelli og grunnvatn austan Þórisvatn sýndi nokkra fylgni við jökulbráð af Tungnaárjökli. Aðfallsgreining á rennsli Tungnaár sýndi fram á hvernig afrennsli af vatnasviði Tungnaár er háttað og að áin sækir grunnvatn sitt í þrjá mismunandi grunnvatnsgeyma. Geymana þrjá er gengið á þegar rennsli árinnar er á bilinu 60-89 m3/s, 40-59 m3/s og 30-39 m3/s. Algengast var að áin sótti rennsli sitt í miðgeyminn og helming vatnsára voru 5,5% eða færri dagar með rennsli á bilinu 30-39 m3/s. Slæm vatnsár áttu það sameiginlegt að yfir veturinn var hlutfall daga á bilinu 30-39 m3/s mun hærra en venjulega. Með vöktun á rennsli Tungnaár, sérstaklega á lágrennsli yfir vetrartímann, er hægt að áætla hversu djúpt í grunnvatnsgeyminn áin þarf að sækja rennsli sitt og hversu vel staddur grunnvatnsforði árinnar er fyrir sumarið. Þar af leiðandi er hægt að taka upplýstari ákvörðun um raforkuframleiðslu og miðlun á vatnasviðinu áður en mikilvægast tími ársins til vatnssöfnunar gengur í garð. This study focuses on ground water in the Tungnaá river basin and its interaction with the flow of the river. The flow of Tungnaá river was analyzed using a master recession curve and whether it is possible to assess the groundwater reserves of the river at the current time. Landsvirkjun has for years monitored the groundwater in the area and that data was compared with measurements of ...
|