Starfræn einkenni: Einstaklingar með starfræn einkenni á taugalækningadeild Landspítala á árunum 2014 - 2015 og þekking sjúkraþjálfara á röskuninni

Inngangur: Starfræn einkenni eru einkenni frá taugakerfi án vefrænna orsaka. Röskunin einkennist af klínískri birtingu einkenna sem samræmast ekki einkennum af vefrænum orsökum. Algengt er að sjúklingar séu með mörg ólík einkenni sem geta verið breytileg í sjúkdómsferlinu. Sjúkraþjálfun er mikilvægt...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Agnes Ósk Snorradóttir 1990-, Freyja Barkardóttir 1990-, Lilja Minný Sigurbjörnsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24698
Description
Summary:Inngangur: Starfræn einkenni eru einkenni frá taugakerfi án vefrænna orsaka. Röskunin einkennist af klínískri birtingu einkenna sem samræmast ekki einkennum af vefrænum orsökum. Algengt er að sjúklingar séu með mörg ólík einkenni sem geta verið breytileg í sjúkdómsferlinu. Sjúkraþjálfun er mikilvægt meðferðarúrræði fyrir hópinn. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á algengi, einkennum og meðferðarúrræðum fyrir sjúklingahópinn hér á landi. Markmið: Að kanna algengi og einkenni sjúklingahópsins á taugalækningadeild Landspítala árin 2014 og 2015 og hversu oft sjúklingum var vísað í áframhaldandi sjúkraþjálfun. Að skoða mat sjúkraþjálfara á Íslandi á þekkingu sinni á röskuninni. Aðferðafræði: Gögnum um algengi og einkenni sjúklinganna var safnað afturskyggnt úr skráningarkerfi Landspítalans. Spurningakönnun var send út á sjúkraþjálfara í Félagi sjúkraþjálfara. Niðurstöður: Á árunum 2014 og 2015 voru 122 sjúklingar á taugalækningadeild með starfræn einkenni. Marktækt fleiri fengu greiningu árið 2015 (p=0,0038) en 2014. Fleiri konur fengu greininguna (81,1%) og var meðalaldur hópsins 43 ár. Algengustu einkenni sjúklinganna voru máttminnkun og skyntruflanir, 36,9% voru með aðra taugasjúkdóma og 9,0% með aðra geðsjúkdóma. Rúmlega helmingi sjúklinga var vísað í sjúkraþjálfun eftir útskrift af taugalækningadeild og þar af áttu 68,2% sjúklinga að fara í endurhæfingu á heilbrigðisstofnun. Svarhlutfall spurningakönnunarinnar var 47,0% (n=270). Sjúkraþjálfarar sem höfðu haft marga sjúklinga með röskunina í meðferð og/eða störfuðu á taugasviði töldu sig með góða þekkingu á starfrænum einkennum en yfir 80% sjúkraþjálfara mátu sig með miðlungs- eða litla þekkingu. Ályktanir: Starfræn einkenni er algeng röskun á taugalækningadeild Landspítala og sjúkraþjálfun er oft nýtt sem meðferðarúrræði fyrir einstaklinga með starfræn einkenni. Introduction: Functional neurological disorder (FND) consists of symptoms from the nervous system without an organic cause. Patients tend to have variable, ever-changing symptoms. Physiotherapy is an ...