Leiguíbúð, fyrir ferðamenn eða langtímaleigjendur?

Markmið rannsóknarinnar var að kanna fyrir fyrirtæki sem á leiguíbúð í miðbæ Reykjavíkur hvort meiri hagnaður sé fólgin í leigu íbúðarinnar til erlendra ferðamanna en gefst í langtímaleigu á almennum markaði. Ljóst er að mikil aukning hefur orðið á ferðamönnum til Íslands og virðist ekkert lát vera...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lísa María Karlsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24529
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna fyrir fyrirtæki sem á leiguíbúð í miðbæ Reykjavíkur hvort meiri hagnaður sé fólgin í leigu íbúðarinnar til erlendra ferðamanna en gefst í langtímaleigu á almennum markaði. Ljóst er að mikil aukning hefur orðið á ferðamönnum til Íslands og virðist ekkert lát vera á því. Allar spár um fjölda ferðamanna hafa verið langt undir rauntölum. Fleiri og fleiri ferðamenn nýta sér aðra gistimöguleika en hótel eða gistiheimili. Tekið var viðtal við aðila í ferðamennsku og leiguaðila. Spurningalisti var lagður fyrir ferðamenn í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík og kannanir voru gerðar á verði og lausum íbúðum, annars vegar á vef airbnb.com og hins vegar á vef booking.com. Samanburður var gerður á gjöldum og tekjum en einnig á áhættu og samkeppni á leigumörkuðunum. Miklu meiri rekstrargjöld og vinnuframlag er í ferðamannaleigu en í langtímaleigu og ferðamannaleiga krefst meiri upphafskostnaðar. Samkeppni er mikil í ferðamannaleigu og einungis 13% íbúða hafa leyfi fyrir gistiaðstöðunni í Reykjavík.