Moska í Reykjavík. Orðræðugreining á umfjöllun um byggingu mosku í Reykjavík í Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, visir.is og mbl.is í umróti hryðjuverka í Evrópu árið 2015

Markmið rannsóknarinnar var að skoða orðræðu í fjölmiðlum um byggingu væntanlegrar mosku í Reykjavík í kjölfar hryðjuverka í Evrópu árið 2015. Rannsökuð voru tvö dagblöð Morgunblaðið og Fréttablaðið og vefmiðlarnir mbl.is og visir.is. Greind voru þrjú mánaðarlöng tímabil á árinu eftir hvert hryðjuve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðný Sigurðardóttir 1965-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24489
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að skoða orðræðu í fjölmiðlum um byggingu væntanlegrar mosku í Reykjavík í kjölfar hryðjuverka í Evrópu árið 2015. Rannsökuð voru tvö dagblöð Morgunblaðið og Fréttablaðið og vefmiðlarnir mbl.is og visir.is. Greind voru þrjú mánaðarlöng tímabil á árinu eftir hvert hryðjuverk sem framið var í Evrópu, hina mannskæðu árás á ritstjórnarskrifstofu vikuritsins Charlie Hebdo í París í janúar, árásina í Kaupmannahöfn í febrúar og loks fjöldamorðin í París í nóvember. Lagt var upp með rannsóknarspurninguna Hvaða orðræða birtist í umfjöllun um væntanlega byggingu mosku í Reykjavík í kjölfar hryðjuverka í Evrópu árið 2015 í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu og vefmiðlunum visir.is og mbl.is? Orðræðan var skoðuð í ljósi kenninga Edwards Saids um óríentalisma, Noelle-Neumann um þagnarsvelginn og loks kenninga um siðfár í anda Cohens og um pólitískt siðfár á anda Shafir og Schairer. Greindar voru fréttir, pistlar og ritstjórnarefni og aðsend bréf. Niðurstöðurnar voru að greina mætti þrástef óríentalismans og þöggunar á tímabilunum en engar forsendur voru fyrir greiningu pólitísks siðfárs.