Summary: | Markmið rannsóknarinnar var að skoða orðræðu í fjölmiðlum um byggingu væntanlegrar mosku í Reykjavík í kjölfar hryðjuverka í Evrópu árið 2015. Rannsökuð voru tvö dagblöð Morgunblaðið og Fréttablaðið og vefmiðlarnir mbl.is og visir.is. Greind voru þrjú mánaðarlöng tímabil á árinu eftir hvert hryðjuverk sem framið var í Evrópu, hina mannskæðu árás á ritstjórnarskrifstofu vikuritsins Charlie Hebdo í París í janúar, árásina í Kaupmannahöfn í febrúar og loks fjöldamorðin í París í nóvember. Lagt var upp með rannsóknarspurninguna Hvaða orðræða birtist í umfjöllun um væntanlega byggingu mosku í Reykjavík í kjölfar hryðjuverka í Evrópu árið 2015 í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu og vefmiðlunum visir.is og mbl.is? Orðræðan var skoðuð í ljósi kenninga Edwards Saids um óríentalisma, Noelle-Neumann um þagnarsvelginn og loks kenninga um siðfár í anda Cohens og um pólitískt siðfár á anda Shafir og Schairer. Greindar voru fréttir, pistlar og ritstjórnarefni og aðsend bréf. Niðurstöðurnar voru að greina mætti þrástef óríentalismans og þöggunar á tímabilunum en engar forsendur voru fyrir greiningu pólitísks siðfárs.
|