Listin og Guð. Hvernig viðhorf Sámals Joensen Mikines til trúarinnar höfðu áhrif á myndval hans og efnistök

Í þessari ritgerð mun ég fjalla um færeyska málarann Sámal Joensen Mikines, sem fæddist árið 1906 á eyjunni Mykines í Færeyjum. Ég mun leitast við að útskýra hvernig trúarleg viðhorf Sámals Joensen Mikines birtast í verkum hans og hvernig þau hafa áhrif á myndval hans og efnistök. Umfjöllun mín skip...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Harpa Flóventsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2440
Description
Summary:Í þessari ritgerð mun ég fjalla um færeyska málarann Sámal Joensen Mikines, sem fæddist árið 1906 á eyjunni Mykines í Færeyjum. Ég mun leitast við að útskýra hvernig trúarleg viðhorf Sámals Joensen Mikines birtast í verkum hans og hvernig þau hafa áhrif á myndval hans og efnistök. Umfjöllun mín skiptist niður í fimm kafla sem koma á eftir inngangi. Fyrsti kaflinn fjallar um trúmál í Færeyjum á þeim tíma sem Mikines var að alast upp. Ég mun draga upp mynd af því trúarlega andrúmslofti sem þá ríkti til þess að gera grein fyrir því hversu mikilvæg og sífellt nálæg trúin var Færeyingum á þessum tíma. Síðan koma fjórir kaflar sem hver um sig fjallar um nokkur verk á listferli Sámals Joensen Mikines, flokkuð niður eftir myndefni. Í upphafi hvers kafla er stutt kynning, eða inngangur að hverjum flokki fyrir sig. Annar kaflinn fjallar um dimma tímabilið svo kallaða sem á rætur sínar að rekja til áranna um og eftir 1930 þegar hann var að klára nám í Akademíunni í Kaupmannahöfn. Þriðji kaflinn er helgaður umfjöllun á verkum hans sem eiga beina tengingu við Biblíuna, biblíutengd þemu í verkum Mikines. Í fjórða kaflanum skoða ég nokkur verk í flokki mynda sem hægt er að kalla sólarmyndir, sem hann málaði upp úr miðri 20. öldinni þar á meðal af þorpinu Mykines þar sem hann ólst upp og ber saman verk úr umfjöllun minni í 3. kafla og 4. kafla. Í fimmta kaflanum skoða ég grindardrápsverkin en þau fékkst hann við næstum allan sinn listferil að einhverju leyti. Trúin er og hefur alltaf verið sterk hjá Færeyingum og trúarviðhorf Sámal Joensen Mikines hefur nokkrar mismunandi birtingarmyndir í verkum hans og birtast þau meðal annars í myndvali og efnistökum.