Áhrif ferðamanna á húsnæðisverð

Húsnæðismarkaðurinn hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni undanfarin ár, þá sérstaklega vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp. Vegna efnahagshrunsins árið 2008 og aukins ferðamannastraums til landsins hefur skapast skortur á húsnæði, sér í lagi litlum íbúðum miðsvæðis í Reykjavík. Teknir eru...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Árnheiður Edda Hermannsdóttir 1985-, Snorri Freyr Fairweather 1985-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23866
Description
Summary:Húsnæðismarkaðurinn hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni undanfarin ár, þá sérstaklega vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp. Vegna efnahagshrunsins árið 2008 og aukins ferðamannastraums til landsins hefur skapast skortur á húsnæði, sér í lagi litlum íbúðum miðsvæðis í Reykjavík. Teknir eru fyrir helstu þættir sem hafa verðmyndandi áhrif á húsnæði og þeim gerð skil. Fjallað er um húsnæðismarkaðinn og reynt að greina hvað veldur verðhækkunum undanfarinna ára á leigu- og fasteignamarkaði í höfuðborginni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ferðamenn hafi áhrif á húsnæðisverð, en fyrst og fremst í gegnum leigumarkað og leiguverð. Þessi áhrif eru tvíþætt. Annars vegar skapar aukinn ferðamannastraumur aukna eftirspurn eftir leiguíbúðum sem leiðir til minnkandi framboðs á hinum almenna leigumarkaði. Fjölgun íbúða sem leigðar eru ferðamönnum hefur hækkandi áhrif á verðlag fasteigna, einkum í miðborg Reykjavíkur. Þessi þróun á sér einnig stað í hverfum í nánd við miðborgina en segja má að fasteignaverð á fermetra sé því hærra sem íbúðin er nær miðbænum. Þó eru undantekningar frá því. Hins vegar fer nýbyggingum fjölgandi með aukningu ferðamanna hingað til lands og hefur það jákvæð áhrif á leigumarkaðinn í heild til lengri tíma.