Þjóðminjasafn Íslands. Þættir úr stofnanasögu

Í ritgerðinni, Þjóðminjasafn Íslands. Þættir úr stofnanasögu, er fjallað um fjölbreytt hlutverk Þjóðminjasafns Íslands í hálfa aðra öld með áherslu á síðasta aldarfjórðung mikilla breytinga. Leitast er við að fjalla um mótunarsögu og áherslur í faglegu starfi stofnunarinnar, umsýslu með menningararf...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Hallgrímsdóttir 1964-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/23442
Description
Summary:Í ritgerðinni, Þjóðminjasafn Íslands. Þættir úr stofnanasögu, er fjallað um fjölbreytt hlutverk Þjóðminjasafns Íslands í hálfa aðra öld með áherslu á síðasta aldarfjórðung mikilla breytinga. Leitast er við að fjalla um mótunarsögu og áherslur í faglegu starfi stofnunarinnar, umsýslu með menningararf sem stofnunin ber ábyrgð á að varðveita, rannsaka og miðla þekkingu um. Þannig er litið til hlutverks Þjóðminjasafnsins sem opinberrar stofnunar og almannavettvangs með ríkt samfélagslegt hlutverk. Þá er litið til áhrifa stofnunarinnar á mótun menningarstarfsemi á íslandi. Greining er unnin út frá heimildum og gögnum um stofnunina. Vikið er að áherslum og viðhorfum sem endurspeglast í starfseminni og stiklað á stóru í viðburðaríkri sögu og mismunanandi „æviskeiðum“ stofnunar. Sjónum er beint að viðhorfum um hlutverk Þjóðminjasafnsins allt frá upphafsárum og til liðinna áratuga. Í ritgerðinni er leitast við að rýna hvernig áherslur í starfsemi safnsins endurspegla skilgreind gildi þess og hvernig umhverfið, straumar og stefnur hafa átt sinn þátt í að móta hlutverk þess. Litið er til lagaumhverfis og þróunar þess í tímans rás í samhengi við aðstæður í samfélaginu á hverjum tíma. Þá er sjónum sérstaklega beint að sögu og mótunarþáttum stofnunarinnar, m.a. áhrifum nýskipanar í ríkisrekstri sem og tilkomu samkeppnislaga undir lok síðustu aldar. Þar er litið til aukinnar áherslu á árangurstjórnun, einkavæðingu og verkaskiptingu opinberra og sjálfstætt starfandi aðila á fagsviðinu á liðnum aldarfjórðungi. In the thesis, The National Museum of Iceland. History of a Governmental Institution, I discuss the National Museum of Iceland’s multifaceted role in the last 150 years, with an emphasis on the last quarter-century. A special emphasis is put on the impact of New Public Management on the museum’s regulatory environment, as well as its impact on the preservation of the cultural heritage. I examine the museum’s primary concerns regarding day-to-day tasks, public administration and the overall managing of Iceland’s cultural ...