Ferli sameiningar Borgarsögusafns. Tilviksrannsókn á breytingastjórnun í menningarstofnun

Markmið rannsóknarinnar er að greina feril sameiningar safna og sýningarstaðanna Árbæjarsafns, Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Sjóminjasafns, Viðeyjar og Landnámssýningar í sameinaða einingu Borgarsögusafns Reykjavíkur. Kenningarammi rannsóknarinnar er breytingastjórnun og þátttaka starfsfólks í stofnun...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Jörundsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22915
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar er að greina feril sameiningar safna og sýningarstaðanna Árbæjarsafns, Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Sjóminjasafns, Viðeyjar og Landnámssýningar í sameinaða einingu Borgarsögusafns Reykjavíkur. Kenningarammi rannsóknarinnar er breytingastjórnun og þátttaka starfsfólks í stofnunum í breytingaferlinu. Fjallað er um ástæður misheppnaðra breytingaferla og hvaða atriði eru nauðsynleg í breytingaferlum í samræmi við ráðleggingar viðurkenndra fræðimanna í breytingastjórnun. Einnig er farið yfir forystufræði og þátttöku starfsfólks. Ferill sameiningarinnar er rakinn. Rýnt var í sem fjölbreyttust gögn sem vörpuðu ljósi á sameiningarferlið eins og sameiningargögn, fundargögn og önnur viðeigandi opinber gögn. Tekin voru sex eigindleg hálfstöðluð viðtöl. Tekin voru viðtöl við þrjá almenna starfsmenn og þrjá stjórnendur í stýrihópi sem innleiddi breytingarnar. Farið var yfir undirbúning, upphaf og feril sameiningarinnar, störf stýrihóps og starfsfólks í sameiningunni og að lokum viðhorf viðmælenda og starfsmannakannanir ári eftir sameiningu. Sameiningarferlið er borið saman við breytingastjórnunarfræðin, við tilteknar íslenskar sameiningar og niðurstöður erlendrar greiningar á breytingaferlum á söfnum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að sameiningarferlið og vinnubrögð hafi að mestu fylgt fræðum og ráðleggingum höfunda breytingastjórnunarlíkana og lofar það góðu fyrir það sem enn er ólokið. Bæði starfsfólk og stjórnendur tóku mikinn þátt í sameiningarferlinu. Sameiningarferlinu er þó ekki lokið að mati viðmælenda, enda einungis eitt ár síðan nýtt sameinað Borgarsögusafn opnaði. The aim of the research is to analyze the integration process of the museum and exhibitions merger of Árbær Open Air Museum, The Settlement Exhibition, Reykjavík Museum of Photography, The Maritime Museum and Viðey Island into Reykjavík City Museum. The theoretical framework of the research is change management and different forms of employee participation. The researcher traces the causes of unsuccessful change processes ...