Þátttaka ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi og tengsl við hegðun og líðan

Í þessari rannsókn voru könnuð tengsl þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi við farsæla þroskaframvindu. Farsæl þroskaframvinda leggur áherslu á styrkleika unglinga í stað veikleika. Markmið rannsóknarinnar var að kanna þátttöku í skipuögðu íþróttastarfi og hver samtímatengsl og forspárgildi þátttöku...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Anna Baldursdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/22100
Description
Summary:Í þessari rannsókn voru könnuð tengsl þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi við farsæla þroskaframvindu. Farsæl þroskaframvinda leggur áherslu á styrkleika unglinga í stað veikleika. Markmið rannsóknarinnar var að kanna þátttöku í skipuögðu íþróttastarfi og hver samtímatengsl og forspárgildi þátttöku væru fyrir farsæla þroskaframvindu og þunglyndiseinkenni. Þýði rannsóknar voru unglingar í tíunda bekk í skólum á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Úrtakið samanstóð af 561 nemanda í tíunda bekk (meðalaldur = 15,3 ár). Könnun var lögð fyrir sama hópinn haustið 2013 (n = 519) og vorið 2014 (n = 510). Niðurstöður sýna að meirihluti unglinga tók þátt í íþróttum. Þeir sem tóku þátt í skipulögðu íþróttastarfi höfðu hærra gildi farsæls þroska og færri þunglyndiseinkenni en þeir sem ekki tóku þátt. Stúlkur höfðu hærra gildi farsæls þroska og fleiri þunglyndiseinkenni en drengir. Íþróttaþátttaka að hausti spáði fyrir um farsælli þroska og færri þunglyndiseinkenni að vori en með meiri þátttöku jókst ávinningurinn. Niðurstöður gefa því til kynna að þátttaka í íþróttum geti stuðlað að farsælli þroskaframvindu og færri þunglyndiseinkennum. Samkvæmt kenningum getur ávinningur af íþróttastarfi verið sá sami hvort sem um er að ræða afreksþjálfun með áherslu á árangur eða þátttöku með áherslu á skemmtun. Þá má velta fyrir sér hvor vettvangur sé hérlendis fyrir unglinga sem ekki hafa áhuga á afreksþjálfun til þess að taka þátt og þróa styrkleika í gegnum íþróttastarfið. Framtíðarrannsóknir ættu að kanna áhrif mismunandi íþróttagreina og hvað þurfi að einkenna íþróttastarf til þess að það hafi jákvæð áhrif á þroska. This study explored the relation between participation in structured sports and positive youth development (PYD). The aim of the study was to explore participation in structured sports among youth, explore concurrent relations and if sport participation predicted PYD and symptoms of depression. The populations of the study were youth in the Reykjavik capital area. The sample consisted of 561 students in tenth grade ...