Mikilvægi myndlistakennslu : læsi á umhverfi
Í þessari ritgerð verður fjallað um mikilvægi myndlistakennslu innan grunnskólanna. Skoðað er hugtakið list og staða lista í nútímasamfélagi þar sem áhrif mynda fer ört vaxandi. Til að geta notið listrænnar upplifunar og verið læs á umhverfi sitt er mikilvægi myndlæsis útlistað og rýnt í rannsókn se...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2007
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/221 |
Summary: | Í þessari ritgerð verður fjallað um mikilvægi myndlistakennslu innan grunnskólanna. Skoðað er hugtakið list og staða lista í nútímasamfélagi þar sem áhrif mynda fer ört vaxandi. Til að geta notið listrænnar upplifunar og verið læs á umhverfi sitt er mikilvægi myndlæsis útlistað og rýnt í rannsókn sem lýsir því hvernig myndlæsi þróast hjá einstaklingnum og einnig farið yfir aðferðir til að kenna myndlæsi. Í því sambandi er litið til rannsókna sem lúta að eðli og þróun myndlæsis sem mikilvægt er að skoða með tilliti til aukinna áhrifa myndmiðla í nútímasamfélagi. Skoðaðir eru þeir þættir sem myndlistakennsla þarf að taka á með tilliti til Aðalnámskrár, þ.e. hinn skapandi, hinn gagnrýna og hinn menningarlega. Staða myndlistakennslu og vægi hennar innan grunnskólans er að lokum skoðuð og samstarfsverkefni sem verið er að þróa á vegum Myndlistaskólans í Reykjavík og grunnskólanna er kynnt. |
---|