Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi

Teymisvinna er nokkuð nýtilkomið hugtak innan íslenska skólasamfélagsins. Þessir nýju starfshættir í skólastarfi vöktu athygli mína þegar ég var á fyrsta ári í kennslufræðum við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með þessari ritgerð var að dýpka eigin skilning á teymisvinnu kennara og reyna að mynda mé...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21905
_version_ 1821655615526666240
author Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir 1992-
author2 Háskólinn á Akureyri
author_facet Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir 1992-
author_sort Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir 1992-
collection Skemman (Iceland)
description Teymisvinna er nokkuð nýtilkomið hugtak innan íslenska skólasamfélagsins. Þessir nýju starfshættir í skólastarfi vöktu athygli mína þegar ég var á fyrsta ári í kennslufræðum við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með þessari ritgerð var að dýpka eigin skilning á teymisvinnu kennara og reyna að mynda mér skoðun á þessum tilteknu starfsháttum út frá gagnrýnu sjónarhorni. Þetta leitaðist ég við að gera með upplýsingaöflun gegnum fræðilegar bækur og greinar sem og leit á veraldarvefnum. Í ritgerðinni eru skilgreiningar á hugtakinu „teymisvinna kennara“ skoðaðar, fjallað um eðli og eiginleika teymisvinnu kennara en einnig hvernig teymi eru mynduð og hvað mótar þau. Helstu kostum og takmörkunum teymisvinnu kennara eru gerð skil og að lokum er fjallað um á hvaða hátt Aðalnámskrá grunnskóla fjallar um teymisvinnu kennara. Teymisvinnu kennara má skilgreina þannig að tveir eða fleiri einstaklingar vinni saman í hóp og setji sér sameiginleg markmið. Eðli teymisvinnunnar getur verið mismunandi. Einstaklingar þurfa ekki endilega að starfa á sama tíma í teyminu né heldur kenna sama hópi. Marga þætti þarf að hafa í huga þegar kemur að því að setja saman teymi, þeir snúa meðal annars að markmiðasetningu og almennu skipulagi, samskiptum innan hópsins og hlutverki hans. Ef teymi starfar vel saman getur ávinningur þess meðal annars verið aukin þekking á námi nemenda og fjölbreyttari kennsluhættir en auk þess getur samvinna teymismeðlima dregið úr einangrun kennara. Aftur á móti er margt sem getur farið úrskeiðis í teymisvinnu. Þar er fyrst að nefna tímann sem fer í samvinnu kennara, hann getur auðveldlega farið til spillis, til dæmis í almennar umræður sem ekki tengjast skólanum. Þá getur vantraust og misræmi í skipulagi og markmiðasetningu orðið til þess að teymi nái ekki að starfa eins vel og áætlað var. Aðalnámskrá grunnskóla fjallar þrjá þætti tengda samvinnu sem þó fjalla ekki með beinum hætti um teymisvinnu kennara, þó má ætla að gott samstarf kennara þeirra á milli leiði til jákvæðrar hugsunar nemenda í tengslum við samvinnu.
format Thesis
genre Akureyri
Akureyri
Akureyri
genre_facet Akureyri
Akureyri
Akureyri
geographic Akureyri
geographic_facet Akureyri
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/21905
institution Open Polar
language Icelandic
op_collection_id ftskemman
op_relation http://hdl.handle.net/1946/21905
publishDate 2015
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/21905 2025-01-16T18:40:27+00:00 Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir 1992- Háskólinn á Akureyri 2015-04 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/21905 is ice http://hdl.handle.net/1946/21905 Kennslufræði Grunnskólakennarar Teymiskennsla Thesis Bachelor's 2015 ftskemman 2022-12-11T06:55:48Z Teymisvinna er nokkuð nýtilkomið hugtak innan íslenska skólasamfélagsins. Þessir nýju starfshættir í skólastarfi vöktu athygli mína þegar ég var á fyrsta ári í kennslufræðum við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með þessari ritgerð var að dýpka eigin skilning á teymisvinnu kennara og reyna að mynda mér skoðun á þessum tilteknu starfsháttum út frá gagnrýnu sjónarhorni. Þetta leitaðist ég við að gera með upplýsingaöflun gegnum fræðilegar bækur og greinar sem og leit á veraldarvefnum. Í ritgerðinni eru skilgreiningar á hugtakinu „teymisvinna kennara“ skoðaðar, fjallað um eðli og eiginleika teymisvinnu kennara en einnig hvernig teymi eru mynduð og hvað mótar þau. Helstu kostum og takmörkunum teymisvinnu kennara eru gerð skil og að lokum er fjallað um á hvaða hátt Aðalnámskrá grunnskóla fjallar um teymisvinnu kennara. Teymisvinnu kennara má skilgreina þannig að tveir eða fleiri einstaklingar vinni saman í hóp og setji sér sameiginleg markmið. Eðli teymisvinnunnar getur verið mismunandi. Einstaklingar þurfa ekki endilega að starfa á sama tíma í teyminu né heldur kenna sama hópi. Marga þætti þarf að hafa í huga þegar kemur að því að setja saman teymi, þeir snúa meðal annars að markmiðasetningu og almennu skipulagi, samskiptum innan hópsins og hlutverki hans. Ef teymi starfar vel saman getur ávinningur þess meðal annars verið aukin þekking á námi nemenda og fjölbreyttari kennsluhættir en auk þess getur samvinna teymismeðlima dregið úr einangrun kennara. Aftur á móti er margt sem getur farið úrskeiðis í teymisvinnu. Þar er fyrst að nefna tímann sem fer í samvinnu kennara, hann getur auðveldlega farið til spillis, til dæmis í almennar umræður sem ekki tengjast skólanum. Þá getur vantraust og misræmi í skipulagi og markmiðasetningu orðið til þess að teymi nái ekki að starfa eins vel og áætlað var. Aðalnámskrá grunnskóla fjallar þrjá þætti tengda samvinnu sem þó fjalla ekki með beinum hætti um teymisvinnu kennara, þó má ætla að gott samstarf kennara þeirra á milli leiði til jákvæðrar hugsunar nemenda í tengslum við samvinnu. Thesis Akureyri Akureyri Akureyri Skemman (Iceland) Akureyri
spellingShingle Kennslufræði
Grunnskólakennarar
Teymiskennsla
Guðrún Hanna Sigurjónsdóttir 1992-
Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
title Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
title_full Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
title_fullStr Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
title_full_unstemmed Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
title_short Teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
title_sort teymisvinna kennara í grunnskólastarfi
topic Kennslufræði
Grunnskólakennarar
Teymiskennsla
topic_facet Kennslufræði
Grunnskólakennarar
Teymiskennsla
url http://hdl.handle.net/1946/21905