Notkun FINDRISK matstækisins til að meta áhættu á sykursýki tegund 2

Aukin vitundarvakning hefur verið um allan heim um mikilvægi þess að sporna við þróun á sykursýki tegund 2 (SS2). Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að algengi SS2 hefur verið að aukast bæði hér á landi og um allan heim. Greining SS2 er að verða algengari hjá fólki sem er enn á vinn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Margrét Ingvarsdóttir 1969-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21838
Description
Summary:Aukin vitundarvakning hefur verið um allan heim um mikilvægi þess að sporna við þróun á sykursýki tegund 2 (SS2). Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að algengi SS2 hefur verið að aukast bæði hér á landi og um allan heim. Greining SS2 er að verða algengari hjá fólki sem er enn á vinnumarkaði. Áhættuskimun er forvarnarleið þegar kemur að langvinnum sjúkdómum eins og SS2. Fræðsla til handa þeim sem eru í áhættuhópi við að þróa með sér SS2 er mikilvæg þegar kemur að nauðsynlegum lífsstílsbreytingum. Tilgangur rannsóknarinnar var að leggja fyrir FINDRISK matstækið til að athuga hvað það væru margir í áhættu við að þróa með sér SS2 á næstu 10 árum í ákveðnu þýði, og að fá upplýsingar um notagildi FINDRISK hér á landi. FINDRISK samanstendur af 8 spurningum, samanlagður stigafjöldi er frá 0 – 21 stig. Viðmiðunargildið til að þróa með sér SS2 var ákveðið ≥9. Þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé um að FINDRISK er lagt fyrir hér á landi. Við gerð rannsóknarinnar var notast við megindlega rannsóknaraðferð. FINDRISK matstækið var lagt fyrir og mælingar á hæð, þyngd, ummáli mittis, blóðsykri og blóðþrýstingi voru framkvæmdar og LÞS reiknaður. Þátttakendur (N=82) í rannsókninni voru starfsmenn landvinnslu Samherja ehf. á Akureyri, 37 karlar og 45 konur, meðalaldur þátttakenda var 42,6 ár. Svarhlutfallið var 70% (82/117). Megin niðurstaða rannsóknarinnar var að 27 þátttakendur (32,9%) voru með ≥9 stig á FINDRISK og teljast því í áhættuhópi við að þróa með sér SS2 á næstu 10 árum. Þegar heildarstig FINDRISK voru borin saman á milli kynja voru konur í aukinni áhættu við að þróa með sér SS2 miðað við karla (p=0,03). Það voru 42,2% kvenna á móti 18,9% karla sem reyndust vera í áhættu við að þróa með sér SS2. Aðhvarfsgreining sýndi að blóðsykur og efri blóðþrýstingsmörk hafa marktæk áhrif á heildarstig FINDRISK. Helsta ályktunin er að FINDRISK er hentugt til skimunar á SS2. Það er einfalt í uppsetningu og tekur ekki langan tíma að svara. Það er þörf á reglulegum skimunum hér á landi vegna SS2, aukinni ...