Summary: | Verkefnið er lokað til 12.5.2020. Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða þekkingarleit foreldra á Íslandi, 18 ára og eldri, með sitt fyrsta barn og athuga hvort menntun, aldur, kyn, félagsleg staða og sálræn líðan séu áhrifavaldar í þekkingarleitinni. Þekkingarleit foreldra hefur breyst í gegnum tíðina og sýna niðurstöður erlendra rannsókna að foreldrar í dag leita sér helst þekkingar á veraldarvefnum, hjá fagaðilum, fjölskyldu og vinum. Gífurlegt magn upplýsinga stendur foreldrum til boða en misjafnt er hversu áreiðanlegar þær eru. Niðurstöður rannsókna sýna að foreldrar vilja að upplýsingar sem þeir fá séu byggðar á gagnreyndri þekkingu. Einnig sýna niðurstöður að veraldarvefurinn er ekki einungis orðinn einn af helstu upplýsingamiðlum foreldra heldur sækja þeir sér líka stuðning og þekkingu til annarra foreldra í sömu stöðu. Sú rannsóknaraðferð sem varð fyrir valinu er megindleg lýsandi þversniðsrannsókn þar sem gagna er aflað með spurningalista. Þær rannsóknarspurningar sem lagðar verða til grundvallar eru: Hvar leita foreldrar á Íslandi, 18 ára og eldri, sér þekkingar með frumburð á fyrsta æviári hans í tengslum við foreldrahlutverkið? Er munur á þekkingarleit eftir aldri barnsins? Upplifa foreldrar að upplýsingar sem þeir fá séu áreiðanlegar og fer sá áreiðanleiki eftir því hvaðan þær eru fengnar? Hefur aldur, menntun, kyn, félagsleg staða og sálræn líðan áhrif á þekkingarleit? Er þekkingarleit mismunandi eftir fræðsluþörfum? Mikilvægt er að foreldrar fái upplýsingar byggðar á gagnreyndri þekkingu og með því að kanna þetta viðfangsefni er hægt að fá innsýn inn í þekkingarleit nútímaforeldra og bregðast við fræðsluþörfum þeirra. This research proposal is a final thesis towards a B.Sc. degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of the research is to explore how first-time parents in Iceland, 18 years and older, search for knowledge and to see if education, age, gender, social status and ...
|