„Hver er þá málsvari þessa hóps?“ Staða ungmenna á Íslandi sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun

Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn inn í reynsluheim fagaðila sem vinna með ungmennum sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Tekin voru viðtöl við níu fagaðila, fjóra náms- og starfsráðgjafa og fimm forstöðumenn, sem allir vinna í úrræðum sem ætluð eru hópi ungmenna sem eru í þessum spo...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Jóna Guðmundsdóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21624
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn inn í reynsluheim fagaðila sem vinna með ungmennum sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Tekin voru viðtöl við níu fagaðila, fjóra náms- og starfsráðgjafa og fimm forstöðumenn, sem allir vinna í úrræðum sem ætluð eru hópi ungmenna sem eru í þessum sporum. Áhersla var lögð á að fá fram mat þeirra á hvað einkenni hópinn, hvað sé mikilvægt í vinnu með honum og hvaða hindrunum hópurinn stendur frammi fyrir. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að algengt er að ungmenni sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun séu með greiningar á borð við ADHD, lesblindu og einhverfu. Mörg koma brotin úr grunnskólanum, hafa verið í neyslu og þrífast illa í menntakerfinu. Mikilvægt þykir að ungmennin fái einstaklingsmiðaða þjónustu og að bæta þurfi við fleiri námsleiðum í íslenskt menntakerfi þar sem minna er um bóknámskröfur. Aukinheldur þótti mikilvægt að bæta við fleiri úrræðum fyrir ungmennin og þá einkum fyrir þau sem eru í fíkniefnaneyslu. Jafnframt töldu fagaðilarnir að stefnuleysis stjórnvalda gæti í málaflokknum, langtímasýn vanti og fjármagn skorti. Samningar við úrræðin eru oft til skamms tíma sem gerir það að verkum að erfitt er að móta og þróa starfið ásamt því að fá og halda í reynslumikið fagfólk. The aim of the study was to gain insight into the experiences and opinions of professionals working with young people who are not in work, education or training (NEET). Interviews were conducted with nine professionals, four career guidance counselors and five directors, that all work in intervention intended for the aforementioned group of young people. Participants were asked what they considered to be the characteristics of the group, whether and then what obstacles they encountered and what they thought to be important in working with the NEETs. Furthermore the participants were asked what the role of the career guidance counselors is. The results showed that diagnosis such as ADHD, dyslexia and autism are common among the youth. Many of the them also exit primary ...