Ofþjálfun meðal íslenskra ungmenna í íþróttum. Spurningalisti til þjálfara og sjúkraþjálfara varðandi tíðni, skilgreiningar og mælitæki

Markmið könnunar var að skoða hvort þjálfarar og sjúkraþjálfarar telji ofþjálfun hafa verið klínískt vandamál meðal ungmenna (13-18 ára) í íþróttum á Íslandi síðustu 12 mánuði og þá hver tíðni væri. Sambærileg könnun hefur ekki verið framkvæmd hér á landi áður. Höfundar settu saman skilgreiningu á o...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ágústa Ýr Sigurðardóttir 1991-, Þóra Hugosdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21531
Description
Summary:Markmið könnunar var að skoða hvort þjálfarar og sjúkraþjálfarar telji ofþjálfun hafa verið klínískt vandamál meðal ungmenna (13-18 ára) í íþróttum á Íslandi síðustu 12 mánuði og þá hver tíðni væri. Sambærileg könnun hefur ekki verið framkvæmd hér á landi áður. Höfundar settu saman skilgreiningu á ofþjálfun út frá fræðunum og þátttakendur svöruðu samkvæmt þeirri skilgreiningu. Markmið var einnig að sjá hvort þátttakendur væru sammála skilgreiningu höfunda á ofþjálfun og hvort þeir hefðu mælitæki og þekkingu til að meta ofþjálfun. Tveir spurningalistar voru búnir til af höfundum út frá gagnreyndri þekkingu. Annar var lagður fyrir þjálfara sem þjálfa fimleika, frjálsar, handknattleik, knattspyrnu og sund. Þar var svarhlutfall 44,7%. Hinn var lagður fyrir sjúkraþjálfara á verktakaskrá Félags sjúkraþjálfara. Þar var svarhlutfall 52,8%. Spurningalistarnir voru á rafrænu formi. Helstu niðurstöður þessarar könnunar eru að ofþjálfun meðal íslenskra ungmenna er klínískt vandamál a.m.k. að mati sjúkraþjálfara og þjálfara. Sjúkraþjálfarar meta tíðnina á bilinu 1-20% á meðan þjálfarar meta tíðnina 0-10%. Meirihluti þátttakenda (92% þjálfara og 86,9% sjúkraþjálfara) var sammála skilgreiningu höfunda á ofþjálfun. Rúmlega helmingur þjálfara (51,1%) en rúmlega þriðjungur sjúkraþjálfara (33,7%) telja sig hafa þekkingu og mælitæki til að meta ofþjálfun. Meirihluti þátttakenda (83,5% þjálfara og 95,0% sjúkraþjálfara) telur fræðslu og fovarnarstarf á ofþjálfun vera ábótavant. Ályktað er að ofþjálfun sé klínískt vandamál meðal ungmenna í íþróttum á Íslandi og undirstrikar það nauðsyn þess að efla forvarnir og fræðslu í þessum efnum meðal iðkenda, foreldra, þjálfara og sjúkraþjálfara. The aim of the survey was to identify if coaches and physiotherapists consider overtraining syndrome to be a clinical problem among 13-18 year-old Icelandic athletes over the last 12 months and furthermore to evaluate the frequency of the problem. Comparable study has not been conducted in Iceland before. The authors formed a definition of ...