Rekstrarform atvinnurekstrar : skattar og útgreiðslur til eigenda

Skattar og mögulegar greiðslur til eigenda skipta máli við val á rekstrarformi fyrir atvinnurekstur. Talið er að skattahagræði og form ábyrgðar séu þeir tveir þættir sem mestu ráða við val á rekstrarformi. Nokkur rekstrarform eru í boði og má þar helst nefna einkahlutafélag, sameignarfélag og einsta...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Kjartansdóttir 1969-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21325
Description
Summary:Skattar og mögulegar greiðslur til eigenda skipta máli við val á rekstrarformi fyrir atvinnurekstur. Talið er að skattahagræði og form ábyrgðar séu þeir tveir þættir sem mestu ráða við val á rekstrarformi. Nokkur rekstrarform eru í boði og má þar helst nefna einkahlutafélag, sameignarfélag og einstaklingsfyrirtæki, en þessi þrjú rekstrarform eru algengust fyrir atvinnurekstur á Íslandi. Tekjuskattsstofnar og skatthlutföll eru mismunandi eftir rekstrarformum. Útgreiðslur til eigenda bera fjármagnstekjuskatt þegar þær eru í formi arðgreiðslna. Markmið þessa verkefnis er að sýna fram á áhrif af mismunandi skattaumhverfi atvinnurekstrar á Íslandi eftir rekstrar- og félagsformum. Markmið verkefnisins er einnig að kanna hvort eigendur hafi náð fram skattalegu hagræði með því rekstrarformi sem þeir hafa valið fyrir atvinnurekstur sinn. Valin voru þrjú algengustu rekstrarformin til skoðunar. Sett var upp reiknilíkan sem reiknar út skattgreiðslur og mögulegar útgreiðslur til eigenda í mismunandi rekstrarformum. Annars vegar var unnið með tilbúið sýnidæmi til að sýna hvar helsti munurinn liggur milli rekstrarforma. Hins vegar var unnið með ársreikninga raunverulegra fyrirtækja og sýnt fram á hverjar skattgreiðslur og mögulegar útgreiðslur til eigenda hefðu orðið í öðrum rekstrarformum. Heildarniðurstaða úr verkefninu er sú að skattgreiðslur og útgreiðslur til eigenda geta verið mismunandi milli rekstrarforma og hægt er að ná fram skattalegu hagræði. Taxes and possible payments to owners matter when choosing a legal form for business operations. It is believed that tax benefits and forms of responsibilities are the two most important aspects when choosing a legal form. The main legal forms and most common in Iceland are private limited companies, joint partnerships and sole partnerships. Income tax bases and tax rates are different depending on the legal forms. Payments to owners have taxes when they are in the form of dividends. The aim of this project is to show the effects of different tax environments for businesses ...