Rýnt í skipulagseinkenni þéttbýlisstaða í fjörðum á Íslandi

Borgarformfræði leitast eftir að skoða þróun og vöxt skipulaga. M.R.G. Conzen lagði áherslu á að rýna í borgarformin og byggðarmynstrin ásamt sögulegri þróun til á átta sig á skipulagseinkennum. Caniggia rýndi í leiðandi byggingarstíla til að finna ráðandi formgerð hvers tíma. Hann setti byggingar o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: María Guðbjörg Jóhannsdóttir 1980-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20714
Description
Summary:Borgarformfræði leitast eftir að skoða þróun og vöxt skipulaga. M.R.G. Conzen lagði áherslu á að rýna í borgarformin og byggðarmynstrin ásamt sögulegri þróun til á átta sig á skipulagseinkennum. Caniggia rýndi í leiðandi byggingarstíla til að finna ráðandi formgerð hvers tíma. Hann setti byggingar og form þeirra í sögulegt samhengi sem mynduðu hlekki í tungumáli byggingararfleifðar. Sigríður Kristjánsdóttir beitti aðferðum borgarformfræði og skoðaði vaxtarskeið og ráðandi formgerð í Reykjavík. Hún fléttaði saman aðferðir Conzen og Caniggia til að greina borgarformin í Reykjavík. Hluti af rannsóknaraðferð hennar var endurtekin á þrem öðrum þéttbýlisstöðum á Íslandi. Þéttbýlisstaðirnir sem valdir voru, Ísafjörður í Skutulsfirði, Siglufjörður í Siglufirði og Neskaupstaður í Norðfirði, mynduðust við áþekkar aðstæður í þröngum fjörðum. Dregin eru fram vaxtarskeið, borgarform og ráðandi formgerð staðanna, hvers fyrir sig og sameiginlega, til að greina lýsandi skipulagseinkenni. Þéttbýlisstaðir byggjast svipað upp á Íslandi en náttúran er helsti áhrifavaldur í þróun þeirra ásamt sjávarútvegi. Greiningar á þéttbýlisstöðunum bentu til samspils milli ílanga byggðarformsins og stærð undirlendis. Þéttbýlisstaðirnir þrír eiga sér mörg sameiginleg skipulagseinkenni og landslag fjarðanna er ámóta. Vaxtarskeið er þau sömu og í Reykjavík en lögun og form skipulaganna er öðruvísi þar sem landslag er þrengra og undirlendi af skornari skammti en í Reykjavík. Greiningar á skipulagseinkennum þéttbýlisstaða í fjörðum veita góða innsýn í þróun þéttbýlisstaða við strandlínu Íslands. The urban morphology theories search for the development of an urban growth model for a contemporary city. Theories by Caniggia and Conzen were explored by Kristjánsdóttir studying of the outward grow of the city of Reykjavik, Iceland. Now applying theories on smaller towns in Iceland, located around the coast of Iceland. The concept (Conzen 1960) is used to mark growth periods of smaller towns and leading- type concept (Caniggia 1970) to find changes in ...