Stafrænn raunveruleiki? Áhorf og iðkun erlendra ferðamanna í Reykjavík greind á ferðabloggum
Skrif ferðablogga eru sífellt að verða vinsælli leið fyrir einstaklinga til að deila upplifunum sínum af ferðalögum með vinum, ættingjum og öðrum lesendum um allan heim. Þessi ferðablogg hafa þó lítið verið rannsökuð með tilliti til ferðamálafræðinnar en fræðimenn eru þó almennt sammála um að þau ge...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2015
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/20422 |
Summary: | Skrif ferðablogga eru sífellt að verða vinsælli leið fyrir einstaklinga til að deila upplifunum sínum af ferðalögum með vinum, ættingjum og öðrum lesendum um allan heim. Þessi ferðablogg hafa þó lítið verið rannsökuð með tilliti til ferðamálafræðinnar en fræðimenn eru þó almennt sammála um að þau geymi mikið magn upplýsinga sem nýta megi til rannsókna. Ferðablogg og ljósmyndir sem þeim fylgja mynda saman frásagnir einstaklinga upplifunum og athöfnum á ferðalögum. Þar af leiðandi geyma þau meðal annars upplýsingar um áhorf og iðkun ferðamanna á áfangastöðum. Í þessari rannsókn voru 29 ferðablogg þar sem skrifuð voru af erlendum ferðamönnum um dvöl í Reykjavík skoðuð með það að markmiði að kanna áhorf og iðkun þessara einstaklinga í Reykjavík. Þar sem ljósmyndun og ljósmyndir má tengja við bæði iðkun og áhorf voru ljósmyndir sem fylgdu ferðabloggunum einnig rýndar. Niðurstöður sýna að iðkun höfunda þessara blogga í Reykjavík einkennist af líkamlegri hreyfingu í formi göngu um afmarkað svæði innan borgarinnar. Áhorf þeirra beinist einna helst að hinu hversdagslega á í stað hins einstaka og þekkt kennileiti og aðdráttaröfl lúta lægra haldi fyrir veggjalist og litríkum húsum sem ljósmynduð eru í gríð og erg. Saman myndar þessi iðkun og þetta áhorf upplifun sem framkallar jákvæðar tilfinningar meðal ferðamannsins og er notuð til að mynda tengsl við borgina og íbúa hennar. |
---|