Geðveikur eða fábjáni? Aðstæður andlega fatlaðra á Vesturlandi árið 1880. Tilraunavinna á gagnagrunni manntala Íslendinga

Umönnun geðfatlaðra er hluti af menningarsögu allra samfélaga og er umönnun geðfatlaðra á Íslandi þar engin undantekning. Eru hún umfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Er hún í formi frumgagnarannsóknar, sem unnin er upp úr hluta af gagnagrunni manntala, sem gerður er á vegum Þjóðskjalasafns Íslands o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Júlía Sigurðardóttir 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20397
Description
Summary:Umönnun geðfatlaðra er hluti af menningarsögu allra samfélaga og er umönnun geðfatlaðra á Íslandi þar engin undantekning. Eru hún umfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Er hún í formi frumgagnarannsóknar, sem unnin er upp úr hluta af gagnagrunni manntala, sem gerður er á vegum Þjóðskjalasafns Íslands og dr. Ólafar Garðarsdóttur sagnfræðings, fyrir verkefni sem kallast North Atlantic Population Project (NAPP). Er sagt frá þeim einstaklingum sem skráðir voru með einhvers konar geðfötlun í manntali teknu árið 1880 á Vesturlandi. Voru athugasemdir á borð við geðveikur eða fábjáni það sem greindi þessa einstaklinga frá öðrum. Á Vesturlandi árið 1880 voru skráðir í manntal sautján einstaklingar með andlega fötlun – ellefur konur og sex karlar. Er talsverður kynjamunur á heimilisaðstæðum geðrænt fatlaðra. Karlar bjuggu frekar á heimilum ættingja sinna en konum var frekar komið fyrir á heimilum annarra. Bjuggu geðfatlaðar konur t.d. sem niðursetningar, tökukönur eða sem vinnukonur. Aldur geðfatlaðra er ákveðin breyta sem hefur áhrif á þann mun sem er á heimilsaðstæðum þeirra, þar sem konur á þessum tíma urðu eldri en karlar. Einnig er sú hugmyndafræði sem ríkti um kynhlutverk á 19. öld áhrifavaldur á þessar niðurstöður. Every cultural society at every time is under the influence of its health and diseases. Diseases play a vital role in people lives, regarding how and by whom they are treated as in what way they affect social institutions. Diseases are historically, anthropologically and culturally relevant and can give important informations about the way of living in the societies of the world. This BA assignment is an experimental work with a data base that has been in work under the arrangement of the State Archive in Iceland and dr. Ólöf Garðarsdóttir, historian. This is a part of a project called North Atlantic Population Project (NAPP), which is collaborate work with Canada, Great-Britain, Iceland, Norway and U.S.A. This project aims to make all informations from existing census from those participating countries ...