Er grundvöllur fyrir opnun bankaútibús í Grindavík í samkeppni við Landsbankann? Bankaþjónusta á Íslandi
Eiginleg þróun bankaþjónustu á Íslandi hefur í grófum dráttum ekki verið skoðuð mikið af fræðimönnum á síðastliðnum árum þó töluvert hafi borið á því erlendis að ritað sé um þróunina frá persónulegri þjónustu yfir í tæknivæddari þjónustuaðferðir. Enn minna hefur verið athugað hvort grundvöllur fyrir...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2015
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/20307 |
Summary: | Eiginleg þróun bankaþjónustu á Íslandi hefur í grófum dráttum ekki verið skoðuð mikið af fræðimönnum á síðastliðnum árum þó töluvert hafi borið á því erlendis að ritað sé um þróunina frá persónulegri þjónustu yfir í tæknivæddari þjónustuaðferðir. Enn minna hefur verið athugað hvort grundvöllur fyrir fjölgun útibúa eigi við í því efnahagsumhverfi sem Íslendingar búa við í dag. Rekstrarþróun bankanna stefnir í minni yfirbyggingu og lagt er áherslu á skilvirkni þar sem ekki er um ríkisbanka að ræða heldur markaðsdrifin öfl sem eiga í harðri samkeppni. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort grundvöllur væri fyrir opnun útibús í Grindavík í samkeppni við Landsbankann en það færi þvert á þróunina undanfarin ár. Grindavík er öflugt sjávarútvegsbæjarfélag og líkist að mörgu leyti Vestmannaeyjum en í báðum sveitarfélögunum eru stór sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga góðan hluta af kvótanum. Til þess að kanna hvort grundvöllur fyrir rannsókninni væri til staðar var sendur út spurningalisti á rafrænu formi til fyrirtækja í Grindavík og þátttakendur beðnir um að svara spurningum sem fjalla um bankaviðskipti og hver tilhneiging þeirra væri í þeim málum. Einnig var unnið með upplýsingar sem fengnar voru frá talsmönnum viðskiptabankanna og gáfu þær höfundi mikilvæga þekkingu sem miðlað er í gegnum verkefnið og veita því traustari grunn. |
---|