Summary: | Gildi skólastjóra eru talin hafa áhrif á allt skólasamfélagið – skólabrag og nám og kennslu – og gefa vísbendingu um áherslur skólastjóra, sem verða leiðarljós kennara og starfsmanna. Það sem helst virðist sameiginlegt með skólastjórum, sem náð hafa að bæta skólastarfið og árangur nemenda, eru persónuleg gildi á borð við umhyggju fyrir starfsfólki og nemendum, og fagleg gildi, eins og þau að skólinn eigi að hafa hagsmuni nemenda í fyrirrúmi og að allir nemendur geti náð árangri, ásamt skýrri sýn á skólastarfið (Leithwood, Day, Sammons, Harris og Hopkins, 2006). Rannsókn þessi er byggð á viðtölum við skólastjóra í 22 grunnskólum í Reykjavík. Viðtölin voru tekin þegar heildarmat á skólunum fór fram. Markmiðið var að draga fram hvernig skólastjórar líta á hlutverk sitt sem faglegir leiðtogar í skólastarfi, greina áherslur þeirra í starfi og gildi sem þeir leggja til grundvallar í starfi sínu. Einnig voru athuguð tengsl þeirra við kennara og kannað hvernig þeir virkjuðu millistjórnendur til faglegar forystu eða fælu þeim hlutverk í því að leiða faglegt starf og umræður og mynda tengsl milli kennara og skólastjóra um þróun náms og kennslu. Greining á viðtölunum leiddi í ljós þrjá lykilþætti í stjórnunarháttum skólastjóra. Þeir eru áhersla á faglegt forystuhlutverk, áhersla á árangur nemenda og umhyggja fyrir velferð og líðan nemenda og starfsfólks. Niðurstöður benda til þess að um helmingur viðmælenda líti á það sem sitt meginhlutverk að beita sér sem faglegir leiðtogar í skólastarfi og rúmlega þriðjungur leggi mesta áherslu á nám og árangur. Í skólum þar sem styrk fagleg forysta er fyrir hendi birtist það meðal annars í því að millistjórnendur eru tengiliðir milli skólastjóra og kennarahópa. Aðeins tveir skólastjóranna tengjast námi og kennslu með heimsóknum í skólastofur og endurgjöf til kennara. Styrkur skólastjóranna virðist felast í þeirri umhyggju sem þeir bera fyrir starfsfólki og nemendum og birtist greinilega í viðtölunum. Umhyggja skólastjórans birtist í stuðningi við starfsfólk og nemendur og í sumum ...
|