Eyrbyggja and Icelandic Scholasticism. The Boethian Influence on Saga Narrative

Talið er að Eyrbyggja saga hafi verið rituð á 13. öld í klaustrinu að Helgafelli við sunnanverðan Breiðafjörðinn. Mörgum hefur sýnst að sagan beri fá merki um kristileg áhrif, ekki síst vegna eftirminnilegra lýsinga á heiðnum siðum og gripum. Nýlegar rannsóknir hafa snúið þessum viðhorfum á hvolf og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Johnson, Ryan Eric, 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19581
Description
Summary:Talið er að Eyrbyggja saga hafi verið rituð á 13. öld í klaustrinu að Helgafelli við sunnanverðan Breiðafjörðinn. Mörgum hefur sýnst að sagan beri fá merki um kristileg áhrif, ekki síst vegna eftirminnilegra lýsinga á heiðnum siðum og gripum. Nýlegar rannsóknir hafa snúið þessum viðhorfum á hvolf og nú velta menn því fyrir sér hvar mörk kristinna og heiðinna áhrifa liggja í sögunni. Í þessari ritgerð verður sagan skoðuð út frá þeirri megin hugmynd að þar hafi klerkur verið að verki, en að hann hafi unnið á sinn sérstaka hátt úr miklu safni munnlegra heimilda. Úr þeim hafi hann ofið söguna með ákveðinn tilgang í huga. Í stað þess að greina í sundur hina kristnu og heiðnu þætti úr þessum heimildum, verður hugað að því hvernig höfundur stundar sinn vefnað með hliðsjón af útbreiddri hugsunartækni sem kennd var í skólum og tilheyrði Latínulærdómi, nánar tiltekið þríveginum (trivium). Þetta var þrætubókin (dialectic). Fyrst er fjallað um hvað menntun á borð við þessa hafði í för með sér en síðan er litið sérstaklega á útbreiddan texta á þessum tímum, De topicis differentiis eftir Boethius til að auka skilninginn á þessari tegund menntunar. Loks verður hluti af Eyrbyggju sögu rannsakaður í því skyni að horfa á söguna sama sem næst sömu augum og hinn kristni klerkur sem kann að hafa samið hana. Eyrbyggja saga is thought to have been written at the monastery that was located at Helgafell on the south side of Breiðafjörður during the 13th century. Many have considered the saga to have had relatively little Christian influence due to its vivid descriptions of what is purported to be heathen objects and customs within the saga. Recent research has turned this view on its head, leading scholars to ponder where heathen influence ends and Christian begins. It is the purpose of this thesis to explore the idea that a Christian cleric modelled the saga based on the oral sources that he had at his disposal, weaving these sources together to suit his own aims. Rather than searching for the pagan and the Christian elements ...