Queering the Icelandic upper secondary schools : heteronormative discourse and the experiences of queer students in Icelandic upper secondary schools

Doktorsritgerðin er framlag til fræða um hinsegin ungmenni. Hún beinir sjónum að orðræðu hins gagnkynhneigða regluverks (heteronormative discourse) og reynslu hinsegin nemenda í íslenskum framhaldsskólum. Hinseginfræði mynda kenningarramma rannsóknarinnar. Einnig er stuðst við ólíkar kenningar um mó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jón Ingvar Kjaran 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Doctoral or Postdoctoral Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19480
Description
Summary:Doktorsritgerðin er framlag til fræða um hinsegin ungmenni. Hún beinir sjónum að orðræðu hins gagnkynhneigða regluverks (heteronormative discourse) og reynslu hinsegin nemenda í íslenskum framhaldsskólum. Hinseginfræði mynda kenningarramma rannsóknarinnar. Einnig er stuðst við ólíkar kenningar um mótun rýmisins, mótspyrnu, ásamt kenningum um samtvinnun kyngervis og kynhneigðar. Markmið rannsóknarinnar er að skoða og lýsa þeim þáttum orðræðunnar sem festa í sessi hetrósexíska hugmyndafræði innan framhaldsskólans, jafnt innan stofnana sem og á milli einstaklinga. Ennfremur er áhersla lögð á að lýsa reynslu hinsegin nemenda. Eigindlegum rannsóknaraðferðum er beitt: Í fyrsta lagi voru tekin 14 viðtöl við hinsegin nemendur og í öðru lagi framkvæmdar vettvangsathuganir í tveimur framhaldsskólum, annars vegar í Reykjavík og hins vegar utan Reykjavíkur. Gögnunum var safnað á tímabilinu 2010 til 2012. Þátttakendur í viðtalsrannsókninni voru fæddir á tímabilinu 1987 til 1993 og höfðu annaðhvort nýlega brautskráðst eða voru enn í framhaldsskóla. Niðurstöður benda til þess að ungt fólk sem er að velta fyrir sér kynhneigð eða birtingarmyndum kyngervis, eigi erfitt með að fóta sig innan framhaldsskólans. Þetta er þó einstaklingsbundið og fer jafnframt eftir skólum, eins og fram kemur í þeim ritrýndu greinum sem fylgja ritgerðinni. Stofnanabundinn hetrósexismi, hulinn eða áberandi, er hluti af menningu skólanna og samskipti starfsmanna og nemenda. Ennfremur er kyngervi og kynhneigð mótuð af orðræðu hins gagnkynhneigða regluverks. Þar fá ákveðnar birtingarmyndir kyngervis meira vægi og orðræðan um kynhneigð snýst um gagnkynhneigð, þar sem þeir nemendur sem ekki laga sig að ríkjandi viðmiði kynhneigðar og/eða kyngervis eru settir skör lægra. This dissertation expands the literature on queer youth. It focuses on the heteronormative discourse and the experiences of queer students in Icelandic upper secondary schools. Queer theory forms the overall theoretical framework of the research. It is employed in connections to different ...