Taka verðbréfa til viðskipta á verðbréfamarkað : samanburður á reglum Danmerkur, Íslands og Noregs

Í ritgerð þessari er fjallað um þær reglur sem gilda í íslenskum rétti um skárningar fjármálagerninga á skipulegan verðbréfamarkað. Eru þá íslensku reglurnar bornar saman við þær er gilda á sama réttarsviði Danmerkur og Noregs. Ritgerðin er til meistaraprófs í lögfræði við lagadeild Háskólans í Reyk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Davíð Blöndal Þorgeirsson 1988-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19275
Description
Summary:Í ritgerð þessari er fjallað um þær reglur sem gilda í íslenskum rétti um skárningar fjármálagerninga á skipulegan verðbréfamarkað. Eru þá íslensku reglurnar bornar saman við þær er gilda á sama réttarsviði Danmerkur og Noregs. Ritgerðin er til meistaraprófs í lögfræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Í öðrum kafla ritgerðarinnar verður gert grein fyrir þeim almennu hugtökum sem notast er við á sviði verðbréfamarkaðar með áherslu á verðbréf. Einnig verður fjallað um vettvang verðbréfaviðskipta en hin íslenska lagaumgjörð gerir ráð fyrir þremur mismunandi gerðum af skráðum mörkuðum. Þá verður fjallað um hvernig útgefendum og lögaðilum stendur til boða að fá verðbréf sín og fjármálagerninga skráða á markað. Í þriðja kafla eru þá reifuð þau skilyrði sem útgefendur þurfa að lúta til að fá fjármálagerninga sína skráða á markað. Skilyrði þessi koma ýmist fram í lögum, reglugerðum og reglum kauphalla eða skipulegra markaða. Í tengslum við þetta verður farið yfir lýsingar sem birta skal fyrir útboð og töku verðbréfa til viðskipta. Hvert efni þeirra lýsinga skal vera og hvenær útgefandi er laus undan þessari skyldu. Til þess að gera skil á rannsóknarefninu hefur þá verið stuðst við dóma á Íslandi og í Danmörku, ákvarðanir kauphalla og Fjármálaeftirlitsins á Íslandi, lög og lögskýringargögn og fræðigreinar. Í niðurstöðu ritgerðarinnar kemur svo fram hvað betur má fara í íslenskri löggjöf að teknu tilliti til reglna í Danmörku og Noregi. The goal of this thesis, at Reykjavik University´s School of law, is to consider Iceland’s rules governing admission of financial instrument to trade on a regulated market. A comparison will be made between the rules of Iceland and the governing rules of Denmark and Norway. The thesis´ second chapter will address the basic terms in relation to stock trading with regards to financial instruments and securities. Various scenes for stock trading will also be discussed whereas the Icelandic legislative framework allows for three different types of regulated markets. Also how issuers of ...