Summary: | Miklar breytingar hafa orðið á hjúkrunarheimilum á Íslandi undanfarin ár og kristallast breytingarnar í stefnu stjórnvalda á þann hátt að á hjúkrunarheimilum skuli auka heimilisbrag og sjálfræði íbúa. Menning margra hjúkrunarheimila hefur einkennst af stofnanabrag. Til að framfylgja stefnu stjórnvalda ákváðu Öldrunarheimili Akureyrar (ÖA) að innleiða Eden hugmyndafræðina en hún gengur út frá nýrri sýn og áherslum í þjónustu á hjúkrunarheimilum sem miða að því að íbúar öðlist innihaldsríkt líf. Markmið þessa verkefnis er að gera grein fyrir breytingastjórnun og hvernig kenningar í breytingastjórnun samrýmast innleiðingarferli Eden hugmyndafræðinnar á ÖA Gerð var eigindleg rannsókn þar sem snjóboltaúrtak var notað og tekin voru hálf stöðluð viðtöl við átta viðmælendur. Leitast var við að svara spurningum sem snerust meðal annars um hvað starfsfólk hefði að segja um upplifun sína af breytingaferlinu, þ.e. innleiðingu Eden hugmyndafræðinnar á ÖA og hvernig gengi að starfa eftir hugmyndafræðinni í dag. Viðmælendur voru sammála um að búið sé að festa Eden hugmyndafræðina í sessi á ÖA. Sex viðmælendur töldu að innleiðingin hafi gengið vel eða ágætlega og sjö af átta viðmælendum töldu að það gangi ágætlega eða mjög vel að starfa eftir hugmyndafræðinni. Lykilatriði í innleiðingu breytinganna voru þriggja daga Eden námskeið, um það voru allir viðmælendur sammála. Eingöngu þeir viðmælendur sem voru stjórnendur þekktu framtíðarsýn ÖA, þess vegna þarf að leggja aukna áherslu á miðlun framtíðarsýnar til starfsfólks. Lykilorð: Eden hugmyndafræðin, breytingastjórnun, hjúkrunarheimili, menning í skipulagsheildum In recent years considerable changes have been made in the organization of caring for the elderly in nursing homes in Iceland. Changes initiated and implemented by government aim to increase the independence of residents and enhance the household atmosphere. Reacting to this policy, nursing homes in Akureyri (ÖA) decided to implement the Eden Alternative which addresses a new vision and places emphasis on service in ...
|