Frost, dulúð og töfrar? : Norðurland að vetri í hugum gesta

Markmið verkefnisins er að greina erlenda ferðamenn sem ferðast til Norðurlands að vetri niður í skilgreinda markhópa eftir því hverjir þeir eru, ástæðu komu þeirra á svæðið, hegðun þeirra og þörfum. Að auki er mikilvægt að fá fram sýn þeirra á svæðið og hvernig svæðið og afþreying í boði stóð undir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Baldur Ingi Karlsson 1975-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19176
Description
Summary:Markmið verkefnisins er að greina erlenda ferðamenn sem ferðast til Norðurlands að vetri niður í skilgreinda markhópa eftir því hverjir þeir eru, ástæðu komu þeirra á svæðið, hegðun þeirra og þörfum. Að auki er mikilvægt að fá fram sýn þeirra á svæðið og hvernig svæðið og afþreying í boði stóð undir þeirra væntingum. Verkefnið er úrvinnsla á rannsókn sem Akureyrarstofa framkvæmdi í samvinnu við Rannsóknarmiðstöð ferðamála meðal gesta á gististöðum á Akureyri vorið 2013. Rannsóknin var hefðbundin megindleg spurningakönnun með nokkrum opnum spurningum og var var lögð fram á tímabilinu 1. febrúar til 30. apríl 2013 á þeim gististöðum þar sem er að staðaldri mönnuð gestamóttaka. Ekki var hægt að hafa áhrif á samsetningu úrtaksins og því um ólíkindaúrtak að ræða en alls skiluðu sér 532 svör. Þegar búið var að greina svörin voru nokkrir aðilar í ferðaþjónustu beðnir að leggja mat sitt á þau. Í verkefninu er farið fræðilega yfir þá þætti sem tengjast markaðssetningu á svæðinu og greiningu markaða, markaðsfræði, þjónustumarkaðsfræði og neytandahegðun og fjallað almennt um ferðaþjónustu og breytingar síðustu ára á Norðurlandi. Þá eru niðurstöður verkefnisins kynntar og sagt frá lykilniðurstöðum áður en þær eru dregnar saman. Lykilniðurstöður verkefnisins eru að hinn erlendi vetrarferðamaður á Norðurlandi er á aldrinum 30–75 ára, býr í þéttbýli eða borg, er vel menntaður og með tekjur yfir meðaltali. Hann leitar að nýjum og spennandi áfangastöðum, vill ferðast að vetri til og er fyrir áskoranir. Honum líkar vel við Norðurland en bendir þó á hluti sem þarfnast lagfæringa. Niðurstöðurnar gefa möguleika á því að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á svæðinu geti greint sinn markhóp betur til að gera sitt markaðsstarf auðveldara og markvissara. Lykilorð: Markhópagreining-Vetur-Ferðaþjónusta- Norðurland - Spurningakönnun