Summary: | Tilgangur þessarar rannsóknar var að fá upplýsingar um sjónarhorn almennings á Íslandi til þunglyndis. Leitast var við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hver eru viðhorf og skilningur almennings á þunglyndi? Rannsóknin var eigindleg og gagna aflað með þremur 3-6 manna rýnihópum. Rýnihópaumræður fóru fram á höfuðborgarsvæðinu. Auglýst var eftir þátttakendum á samfélagsmiðlum og opinberum stöðum. Alls tóku 14 manns þátt, 12 konur og tveir karlmenn á aldrinum 18 til 66 ára. Í rýnihópunum var stuðst við opinn, óstaðlaðan viðtalsramma með örsögu og umræður hópanna afritaðar orðrétt, kóðaðar og greindar í þemu. Niðurstöður mynduðu þrjú meginþemu: Það sem ekki sést, Samfélagið og Að upplýsa og fræða. Viðmælendur töldu að sjúkdómur á borð við þunglyndi færi ekki í manngreinarálit og margir ekki tilbúnir að horfast í augu við vandann. Margir þættir gætu haft batahvetjandi áhrif og flestir voru þeirrar skoðunar að meðferð þyrfti að vera einstaklingsbundin. Til að meðferð bæri árangur þyrfti hún að vera aðgengilegri og þörf væri á fleiri niðurgreiddum úrræðum. Ástæða þess að fólk leitaði sér ekki hjálpar væri m.a. vegna kostnaðar og vegna fordóma í samfélaginu og eigin fordóma. Þátttakendur voru sammála um að kröfurnar og pressan í íslensku samfélagi hefði mikil áhrif á þá sem glíma við erfiðleika. Gildi fræðslu og þekkingar kom skýrt fram og mikilvægt væri að fræða börn og ungmenni. Slík fræðsla var talin geta dregið úr fordómum. Jákvætt væri að opna umræðuna um þessi mál og að það gæti hjálpað öðrum að átta sig á að fleiri væru að glíma við svipuð vandamál. Nauðsynlegt er að kanna viðhorf almennings til að efla þverfaglega þekkingu fagfólks og betrumbæta aðferðir til heilsueflingar. Lykilhugtök: þunglyndi - viðhorf - almenningur - eigindleg rannsókn The purpose of this study was to gather information about the attitude of the Icelandic public towards depression. The proposed research question was: What is the attitude and general understanding of depression in Iceland? A qualitative approach was used in this ...
|