Nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri : álit og viðhorf nemenda og iðjuþjálfa

Iðjuþjálfunarfræðideild við Háskólann á Akureyri (HA) leitast við að veita nemendum bestu mögulegu menntun sem í boði er á hverjum tíma. Að loknu námi skulu nemendur útskrifast sem sjálfstæðir og öflugir fagmenn með sterka fagvitund og starfsímynd. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna álit og viðh...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Erna Kristín Sigmundsdóttir 1969-, Kristín Heiða Garðarsdóttir 1984-, Svala Helga Sigurðardóttir 1970-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18841
Description
Summary:Iðjuþjálfunarfræðideild við Háskólann á Akureyri (HA) leitast við að veita nemendum bestu mögulegu menntun sem í boði er á hverjum tíma. Að loknu námi skulu nemendur útskrifast sem sjálfstæðir og öflugir fagmenn með sterka fagvitund og starfsímynd. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna álit og viðhorf iðjuþjálfanema og iðjuþjálfa af náminu við HA og hversu vel það undirbjó þá undir störf á vettvangi. Settar voru fram eftirfarandi rannsóknarspurningar: 1) Hvert er álit og viðhorf iðjuþjálfanema á þriðja og fjórða ári til núverandi náms í iðjuþjálfunarfræði við HA?, 2) Hvert er álit og viðhorf iðjuþjálfa sem útskrifuðust fyrir einu til þremur árum, til þess náms sem þeir stunduðu í iðjuþjálfunarfræði við HA? og 3) Hvernig finnst iðjuþjálfum, sem útskrifuðust fyrir einu til þremur árum síðan nám í iðjuþjálfunarfræði við HA hafa undirbúið þá fyrir störf m.t.t. faglegrar færni og þátttöku? Til að ramma inn rannsóknina var notað Kanadíska iðjulíkanið um færni við iðju (CMOP-E). Notuð var megindleg rannsóknaraðferð og gagna aflað með vefrænni spurningakönnun. Þýði rannsóknarinnar voru nemendur á þriðja og fjórða ári vorið 2014 og iðjuþjálfar sem útskrifuðust fyrir einu til þremur árum. Alls voru sendir út 65 spurningalistar og , svör bárust frá 47 einstaklingum eða 72,3%. Stærstum hluta nemenda fannst námið mjög krefjandi, fjölbreytt og áhugavert. Almennt voru nemendur ánægðir með uppbyggingu námsins en óánægja kom fram með vægi hins hagnýta og verklega hluta. Flestum nemendum fannst námið samræmast vel hlutverki iðjuþjálfa og þörfum samfélagsins fyrir þjónustu. Iðjuþjálfarnir töldu námið hafa undirbúið þá vel fyrir starfið og fannst fagleg færni sín hafa verið góð við lok námsins. Það tók þó iðjuþjálfana oftast 6 mánuði til eitt ár að upplifa faglega færni í starfi en u.þ.b. þriðjungur töldu þó að það hefði tekið eitt ár eða meira. Hugtök: Nám í iðjuþjálfun, fagmennska, fagleg færni, fagleg þátttaka. Occupational Therapy Education at the University of Akureyri - View of Students and Professionals - The Occupational ...