Summary: | Tilgangur: Heimildarsamantekt þessi er lokaverkefni til BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða fjölskylduhjúkrun, hvernig henni er beitt af hjúkrunarfræðingum og upplifun ættingja langveikra á því að fá fjölskylduhjúkrun. Við veltum því fyrir okkur hver áhrifaríkasta leiðin er til að hjúkra allri fjölskyldunni. Rannsóknarspurningar sem hafðar voru til hliðsjónar í samantektinni: Hvernig er fjölskylduhjúkrun veitt af hjúkrunarfræðingum inn á deildum sem langveikir sjúklingar liggja inn á? Hvaða þættir eru mikilvægir til að hjálpa ættingjum í gegnum erfitt veikindaferli? Hvaða hindranir eru sem koma í veg fyrir að henni sé beitt? Aðferðarfræði: Gögnum var safnað saman úr gagnagrunnum rafrænt. Notuð voru leitarorð sem voru chronic illness, fjölskylduhjúkrun (family nursing), samskipti, fræðsla, fjölskylduviðtal, Calgary líkanið, stuðningur, krónísk veikindi og fjölskylda. Notaðar voru 53 heimildir, rannsóknir og tímaritsgreinar úr þekktum hjúkrunarfræðitímaritum til að fræðast um efnið sem er tilekið hér fyrir ofan. Einnig var notast við bækur sem fjölluðu um fjölskylduhjúkrun.Til að dýpka skilning okkar á hvernig fjölskylduhjúkrun var veitt voru tekin viðtöl við tvo langveika einstaklinga og fjölskyldur þeirra og reynt að fá upplifun þeirra á því að fá fjölskylduhjúkrun. Einnig voru tekin viðtöl við þrjá hjúkrunarfræðinga sem höfðu reynslu af því að veita fjölskylduhjúkrun í starfi. Niðurstöður: Í viðtölum sem tekin voru við fjölskyldumeðlimi tjáðu þeir sig um mikilvægi þess að hafa fjölskyldufundi oftar og fá að vera með í umönnun þess veika. Hjúkrunarfræðingarnir sem talað var við ræddu einnig mikilvægi þess að veita fjölskylduhjúkrun, sögðu að hún væri tímasparandi og hjálpaði ættingjum til þess að líða betur. Það að setjast niður með fjölskyldumeðlimum og taka við þá stutt viðtal, veita þeim upplýsingar, fá þau til að segja frá sinni líðan, leyfa þeim að spyrja að því sem óvissa væri með og taka niður mikilvægar upplýsingar í leiðinni, skiptir miklu máli. Með ...
|