Ölvunarakstur og manndráp af gáleysi á Íslandi: Rökstuðningur dómskerfisins fyrir refsingum

Alla jafna er ekki talað um eina ríkjandi stefnu í viðurlagapólitík á Íslandi. Almennt er þó talið að viðurlagakerfið skuli vera einfalt og skilvirkt. Hér verður fjallað um tvö sjónarmið sem eru áberandi í umræðunni um refsingar, en það er endurgjald (e.retribution) og nytjastefna (e.utilitarian), s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Heiður Sævarsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18256
Description
Summary:Alla jafna er ekki talað um eina ríkjandi stefnu í viðurlagapólitík á Íslandi. Almennt er þó talið að viðurlagakerfið skuli vera einfalt og skilvirkt. Hér verður fjallað um tvö sjónarmið sem eru áberandi í umræðunni um refsingar, en það er endurgjald (e.retribution) og nytjastefna (e.utilitarian), sem bæði falla undir klassískar kenningar. Að auki verður fjallað um meðferðarstefnuna sem fellur undir pósitífiskar kenningar. Með þá hugmyndafræði til hliðsjónar verður rýnt í sex dóma Hæstaréttar og héraðsdóms sem fallið hafa fyrir manndráp af gáleysi í umferðinni, þegar gerandi er undir áhrifum áfengis. Refsiramminn fyrir brotið er 6 ára fangelsi, en refsiramminn er ávalt nýttur að litlum hluta. Hér verður skoðað hver sé helsti rökstuðningur dómkerfisins við refsingum í þessum brotaflokki. Ölvunarakstur er útbreitt vandamál á Íslandi en umfang þess og niðurstöður rannsókna sem sýna að almenningur telur ekki þörf á að lækka refsiviðmið við akstri undir áhrifum bendi til þess að alvarleiki brotanna sé ekki fyllilega ljós. Að auki verður greint frá viðtali við starfandi héraðdómara og er viðtalinu ætlað að gefa innsýn í viðhorf dómara til þessara mála. Niðurstaðan bendir til þess að dómar fyrir manndráp af gáleysi samræmast ekki þeim kenningum sem kynntar voru í byrjun nema að hluta. Ef einhver vilji er fyrir breytingum í þá átt að nýta betur refsirammann þyrfti að sjá breytingar í lögum, jafnvel með tvískiptum refsiramma eins og tíðkast í Danmörku. Þörf er á vitundarvakningu meðal almennings um alvarleika ölvunaraksturs. Dómarar þyrtu einnig að taka af skarið og einungis dæma óskilorðsbundna dóma, sem þar af leiðandi gæfi þeim svigrúm á að nýta refsirammann betur. Usually there is not one dominant strategy in the politics of sanctions in Iceland. It is generally, however, believed that the penalty system should be simple and efficient. Here will be discussed two views that dominate the debate about punishment; they are retribution and utilitarian, both of which fall under the classical theory. In addition, ...