Viðhorf umsjónarkennara til þjónustu iðjuþjálfa vegna nemenda með sérþarfir

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf umsjónarkennara til þjónustu iðjuþjálfa vegna nemenda með sérþarfir í almennum grunnskólum og afla upplýsinga um hvort þjónustan samræmist óskum þeirra og þörfum. Einnig hvort hagnýt ráðgjöf...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Sigríður Jónsdóttir, Ragnheiður Lúðvíksdóttir, Soffía Haraldsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/178
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf umsjónarkennara til þjónustu iðjuþjálfa vegna nemenda með sérþarfir í almennum grunnskólum og afla upplýsinga um hvort þjónustan samræmist óskum þeirra og þörfum. Einnig hvort hagnýt ráðgjöf og leiðbeiningar iðjuþjálfa skili árangri varðandi aðlögun umhverfis og viðfangsefna nemenda í ljósi stefnunnar um skóla án aðgreiningar. Notuð var eigindleg aðferðarfræði sem gefur þátttakendum tækifæri á að tjá eigin upplifun og reynslu. Þátttakendur voru tíu umsjónarkennarar í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu sem notið höfðu þjónustu iðjuþjálfa vegna nemenda með sérþarfir. Þeir voru valdir markvisst eftir ábendingum frá starfandi iðjuþjálfum á Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Gagnasöfnun fór fram með opnum viðtölum þar sem stuðst var við viðtalsramma. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að viðhorf umsjónarkennara til þjónustu iðjuþjálfa í grunnskólum reyndust mjög jákvæð. Þeir töldu að þjónusta iðjuþjálfa gæti veitt hagnýtar lausnir og úrræði í skólaumhverfinu og sáu hana sem æskilega viðbót við þá stoðþjónustu sem fyrir er innan skólans. Þrátt fyrir takmarkaða innsýn í starfssvið iðjuþjálfa í skólum gerðu kennarar sér þó hugmyndir um hvernig haga mætti þjónustunni í framtíðinni og töldu æskilegt að hafa iðjuþjálfa í hverjum skóla. Kennarar komu með tillögur um að iðjuþjálfar sinni fyrirbyggjandi starfi með fyrstu bekkjum grunnskólans og veiti markvissari þjónustu og eftirfylgd. Þeir töldu að iðjuþjálfar hefðu góða yfirsýn yfir þarfir og aðstæður nemenda og ættu að vera þátttakendur í teymisvinnu vegna þeirra. Þá kom fram að iðjuþjálfar gætu verið tengiliður milli heilbrigðis- og menntakerfis í þjónustu við nemendur með sérþarfir. Ennfremur er það mat kennara að þörf sé fyrir frekari kynningu á starfssviði iðjuþjálfa til kennaranema og starfandi kennara. Þessar hugmyndir geta nýst við skipulag þjónustu iðjuþjálfa innan skólanna í framtíðinni. Lykilhugtök: Nemendur með sérþarfir, þjónusta iðjuþjálfa í ...