Lúxusskútusiglingar á Vestfjörðum og við Grænlandsstrendur : viðskiptalíkan

Ritgerðin er lokuð til 2023 Tækifærum í ferðaþjónustu á Íslandi fer hratt fjölgandi með auknum fjölda ferðamanna. Starfrækt eru ýmis ferðaþjónusufyrirtæki á landinu með mismunandi starfsemi. Lúxusferðir hafa notið aukinna vinsælda undanfarin ár og datt frumkvöðlinum Hagbarði Marinóssyni í hug að set...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrafnhildur Laufey Hafsteinsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17479
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð til 2023 Tækifærum í ferðaþjónustu á Íslandi fer hratt fjölgandi með auknum fjölda ferðamanna. Starfrækt eru ýmis ferðaþjónusufyrirtæki á landinu með mismunandi starfsemi. Lúxusferðir hafa notið aukinna vinsælda undanfarin ár og datt frumkvöðlinum Hagbarði Marinóssyni í hug að setja á laggirnar fyrirtæki með lúxusskútuskiglingar fyrir ferðamenn. Hugmyndin er enn á byrjunarstigi og í verkefni þessu er hún sett upp í viðskiptalíkan Osterwalder og Pigneur. Skoðaðar eru hinar ýmsu breytur eins og möglegur markhópur, hvað hugmyndin hefur upp á að bjóða, hvernig er hægt að koma henni til viðskptavinar, hvaða kostnaðarliði þarf að hafa í huga og hvernig hægt er að skapa tekjustreymi. Einnig er farið yfir hvaða auðlindum hugmyndin býr yfir og hverjir mögulegir samstarfsaðilar eru ásamt því að farið er yfir helstu aðgerðir sem þarf að framkvæma til að koma fyrirtækinu á laggirnar. Til að meta hugmyndina enn frekar notaðist skýrsluhöfundur við SVÓT greiningu til að finna hina ýmsu kosti og galla. Út frá þeim gögnum sem komu fram mat skýrsluhöfundur einnig hvort markaður væri fyrir lúxusskútusiglingar á Íslandi og telur svo vera. Hugmynd Hagbarðs er góð að mati skýrsluhöfundnar en það þarf að útfæra hana betur, gera kostnaðaráætlun og skoða jafnvel möguleika á meiri starfgsemi samhliða lúxussiglingunum áður en lengra er haldið.