Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði

Samstarf stjórnenda og fagfólks menntastofnana hefur á undanförnum árum verið í umræðu innan faglegra lærdómssamfélaga. Í litlum samfélögum er mikilvægt að mannauður innan þess geti nýst fleiri stofnunum til góðs. Frumkvöðlastarf, rannsóknir, menntun og menning innan þekkingarseturs getur haft þau á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir 1957-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17451
_version_ 1821657188691607552
author Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir 1957-
author2 Háskóli Íslands
author_facet Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir 1957-
author_sort Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir 1957-
collection Skemman (Iceland)
description Samstarf stjórnenda og fagfólks menntastofnana hefur á undanförnum árum verið í umræðu innan faglegra lærdómssamfélaga. Í litlum samfélögum er mikilvægt að mannauður innan þess geti nýst fleiri stofnunum til góðs. Frumkvöðlastarf, rannsóknir, menntun og menning innan þekkingarseturs getur haft þau áhrif hvert á annað að þar verði til lærdómsmenning sem hvetur til náms. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna upplifun fullorðinna nemenda sem stundað hafa nám eða nýtt sér aðstöðu til náms hjá menntastofnunum þekkingarsetursins Nýheima á Höfn í Hornafirði. Þær stofnanir sem koma að samstarfinu og rannsóknin beindist að eru Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu, Þekkingarnet Austurlands (nú Austurbrú) og Háskólinn á Akureyri. Rannsókninni er ætlað að komast að því hvaða skoðanir þátttakendur hafa á framboði til náms, náms- og starfsráðgjafar, samstarfi menntastofnananna og hverjar hugmyndir þeirra eru um hvað mætti betur fara í skipulagi námsins til þess að fullorðnir nemendur, sem hættu námi eftir grunnskóla, hefji aftur nám. Má gera betur til að hjálpa fullorðnum nemendum sem vilja ljúka formlegri menntun? Getur samstarf stofnana stuðlað að því að nemendur ljúki námi? Rannsóknin leiddi í ljós að allir þátttakendur töldu að nám og aðstaða til náms, sem skipulagt hafði verið í heimabyggð, skipti sköpum. Annars vegar um að þeir hófu nám aftur og hins vegar að geta nýtt sér aðstöðu innan þekkingarsetursins til þess að vinna að og ljúka námi. Ráðgjöf og hvatning hafði einnig mikil áhrif á það að nemendur héldu áfram og luku námi. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa stjórnendum námsins vísbendingar um hvernig þeir geti veitt nemendum sínum betri þjónustu og ráðgjöf. Rannsóknin byggir á eigindlegu rannsóknarsniði og gagnaöflun hófst á vorönn 2013. Rætt var við átta nemendur sem voru í námi, höfðu lokið námi, hætt því eða nýtt sér húsakynni hjá menntstofnunum Nýheima. Af niðurstöðum rannsóknarinnar er hægt að draga þá ályktun að samstarf menntastofnana sem koma að skipulagi náms hjá Nýheimum hafi heppnast. Cooperation of ...
format Thesis
genre Akureyri
Akureyri
Háskólinn á Akureyri
genre_facet Akureyri
Akureyri
Háskólinn á Akureyri
geographic Akureyri
Draga
Höfn
geographic_facet Akureyri
Draga
Höfn
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/17451
institution Open Polar
language Icelandic
long_lat ENVELOPE(7.900,7.900,63.004,63.004)
ENVELOPE(-22.500,-22.500,65.433,65.433)
op_collection_id ftskemman
op_relation http://hdl.handle.net/1946/17451
publishDate 2014
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/17451 2025-01-16T18:40:28+00:00 Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir 1957- Háskóli Íslands 2014-02 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/17451 is ice http://hdl.handle.net/1946/17451 Meistaraprófsritgerðir Stjórnunarfræði menntastofnana Fullorðnir Viðhorfskannanir Dreifbýli Framhaldsskólar Háskólar Nám Eigindlegar rannsóknir Thesis Master's 2014 ftskemman 2022-12-11T06:57:46Z Samstarf stjórnenda og fagfólks menntastofnana hefur á undanförnum árum verið í umræðu innan faglegra lærdómssamfélaga. Í litlum samfélögum er mikilvægt að mannauður innan þess geti nýst fleiri stofnunum til góðs. Frumkvöðlastarf, rannsóknir, menntun og menning innan þekkingarseturs getur haft þau áhrif hvert á annað að þar verði til lærdómsmenning sem hvetur til náms. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna upplifun fullorðinna nemenda sem stundað hafa nám eða nýtt sér aðstöðu til náms hjá menntastofnunum þekkingarsetursins Nýheima á Höfn í Hornafirði. Þær stofnanir sem koma að samstarfinu og rannsóknin beindist að eru Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu, Þekkingarnet Austurlands (nú Austurbrú) og Háskólinn á Akureyri. Rannsókninni er ætlað að komast að því hvaða skoðanir þátttakendur hafa á framboði til náms, náms- og starfsráðgjafar, samstarfi menntastofnananna og hverjar hugmyndir þeirra eru um hvað mætti betur fara í skipulagi námsins til þess að fullorðnir nemendur, sem hættu námi eftir grunnskóla, hefji aftur nám. Má gera betur til að hjálpa fullorðnum nemendum sem vilja ljúka formlegri menntun? Getur samstarf stofnana stuðlað að því að nemendur ljúki námi? Rannsóknin leiddi í ljós að allir þátttakendur töldu að nám og aðstaða til náms, sem skipulagt hafði verið í heimabyggð, skipti sköpum. Annars vegar um að þeir hófu nám aftur og hins vegar að geta nýtt sér aðstöðu innan þekkingarsetursins til þess að vinna að og ljúka námi. Ráðgjöf og hvatning hafði einnig mikil áhrif á það að nemendur héldu áfram og luku námi. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa stjórnendum námsins vísbendingar um hvernig þeir geti veitt nemendum sínum betri þjónustu og ráðgjöf. Rannsóknin byggir á eigindlegu rannsóknarsniði og gagnaöflun hófst á vorönn 2013. Rætt var við átta nemendur sem voru í námi, höfðu lokið námi, hætt því eða nýtt sér húsakynni hjá menntstofnunum Nýheima. Af niðurstöðum rannsóknarinnar er hægt að draga þá ályktun að samstarf menntastofnana sem koma að skipulagi náms hjá Nýheimum hafi heppnast. Cooperation of ... Thesis Akureyri Akureyri Háskólinn á Akureyri Skemman (Iceland) Akureyri Draga ENVELOPE(7.900,7.900,63.004,63.004) Höfn ENVELOPE(-22.500,-22.500,65.433,65.433)
spellingShingle Meistaraprófsritgerðir
Stjórnunarfræði menntastofnana
Fullorðnir
Viðhorfskannanir
Dreifbýli
Framhaldsskólar
Háskólar
Nám
Eigindlegar rannsóknir
Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir 1957-
Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði
title Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði
title_full Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði
title_fullStr Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði
title_full_unstemmed Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði
title_short Aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu Nýheimum á Höfn í Hornafirði
title_sort aftur í nám : viðhorf fullorðinna námsmanna til náms hjá þekkingarsetrinu nýheimum á höfn í hornafirði
topic Meistaraprófsritgerðir
Stjórnunarfræði menntastofnana
Fullorðnir
Viðhorfskannanir
Dreifbýli
Framhaldsskólar
Háskólar
Nám
Eigindlegar rannsóknir
topic_facet Meistaraprófsritgerðir
Stjórnunarfræði menntastofnana
Fullorðnir
Viðhorfskannanir
Dreifbýli
Framhaldsskólar
Háskólar
Nám
Eigindlegar rannsóknir
url http://hdl.handle.net/1946/17451