Summary: | Verkefnið er lokað til janúar 2009 Ágrip Umfjöllunarefni þessa lokaverkefnis er bráðger börn, námsþarfir þeirra og hvernig grunnskólar á Eyjafjarðarsvæðinu koma til móts við þessa nemendur. Verkefnið er tvíþætt. Fyrst er fjallað um skilgreiningar á hugtökunum greind og bráðger. Lítilllega er sagt frá kenningum um nám barna, skoðaðar leiðir til að bera kennsl á bráðgera nemendur í grunnskólum og fjallað um kennsluhætti sem taldir eru henta þeim. Í seinni hluta verkefnisins eru kynntar niðurstöður könnunar sem gerð var meðal deildarstjóra í grunnskólum á Akureyri og skólastjóra smærri skóla við Eyjafjörð. Könnunin var send til 19 deildarstjóra og skólastjóra og fengust svör frá 16 þátttakendum. Spurt var um stefnu skólanna varðandi námsúrræði bráðgerra barna, auk faglegra skoðana og þekkingar þátttakenda á bráðgerum börnum. Í ljós kom að fáir skólanna höfðu mótað skýra stefnu um námsúrræði þessara nemenda þó flestir teldu að í skólanum þeirra væri að finna bráðgera nemendur. Sérfræðingar hafa haldið því fram að mikilvægt sé að bjóða bráðgerum nemendum upp á nám við hæfi, því annars eigi þeir á hættu að temja sér að vinna undir getu og missa áhuga á náminu. Það er því niðurstaða mín í ljósi þessarar könnunar að áhyggjuefni sé hversu fáir skólanna hafa mótað skýra stefnu um úrræði fyrir þessa nemendur. Abstract The subject matter of this final paper is precocious children, their educational needs and how elementary schools in the Eyjafjörður area are approaching these students. The subject of this project is divided into two parts. First the definitions on the concepts intelligence and precocious are covered. Next theories on children’s education are discussed. In addition ways to identify precocious students in elementary schools are pointed out and we take a closer look at the kind of educational methods that are considered suitable for them. In the latter part of the paper results from a survey that was made among department managers in elementary schools in Akureyri and principals of smaller schools in the ...
|