Summary: | Þetta lokaverkefni í byggingariðnfræði gengur út á það að hanna og teikna einbýlishús einnar hæðar staðsteypt á steyptum sökklum með innbyggðri bílageymslu fyrir einn bíl. Húsið á að hafa þrjú svefnherbergi og eiga a.m.k. tvö þeirra að vera samliggjandi. Við húsið skal vera sólstofa. Skökkull,plata og útveggir skulu vera úr járnbentri steinsteypu og útveggir einangraðir að utanverðu með loftræstri klæðningu. Þak skal skal vera úr timbri og borið uppi af stál- eða límtrésbita. Teiknihefti inniheldur aðaluppdrætti, byggingaruppdrætti, deiliuppdrætti, burðarvirkisuppdrætti og lagnauppdrætti. Skýrsla inniheldur verklýsingu, tilboðs/kostnaðaráætlun, burðarþolsútreikninga, varmatapsútreikninga, lagnaútreikninga, þak og niðurfallsútreikninga og loftun þaks. Skýrsla inniheldur einnig útfyllta umsókn um byggingarleyfi, mæli og hæðarblað ásamt gátlista byggingafulltrúa
|