Summary: | Verkefni þetta felst í að hanna og teikna 165 m2 einbýlishús úr steinsteypu með innbyggðri bílageymslu. Verkefnið inniheldur aðaluppdrætti, byggingaruppdrætti, burðarvirkisuppdrætti og lagnauppdrætti ásam lokaskýrlsu og vinnumöppu. Lokaskýrslan inniheldur verklýsingu, tilboðsskrá, kostnaðaráætlun, burðarþols- og lagnaútreikninga, úreikninga fyrir þakrennur, niðurföll og útreikninga fyrir loftun á þaki. Einnig er útfyllt umsókn um byggingarleyfi, útfylltur gátlisti byggingafulltrúa ásamt mæli- og hæðarblaði.
|