Þátttaka íbúa í aðalskipulagsgerð: Breytingar á íbúaþátttöku eftir hrunið 2008
Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er þátttaka íbúa í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga með áherslu á þær breytingar sem urðu á íbúaþátttöku eftir hrunið 2008 og í kjölfar nýrra skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010 sem tóku gildi í janúar 2011. Mikil gagnrýni hefur verið á ákvarðanatöku sveitarf...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2014
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/16986 |
Summary: | Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er þátttaka íbúa í aðalskipulagsgerð sveitarfélaga með áherslu á þær breytingar sem urðu á íbúaþátttöku eftir hrunið 2008 og í kjölfar nýrra skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010 sem tóku gildi í janúar 2011. Mikil gagnrýni hefur verið á ákvarðanatöku sveitarfélaga eftir efnahagshrunið sem átti sér stað hér á landi árið 2008 og jafnframt hafa miklar breytingar átt sér stað á skyldum sveitarstjórna til að auka þátttöku íbúa í ákvarðanatöku. Í rannsókninni var notast við blöndu megindlegra og eigindlegra rannsóknaraðferða. Markmið rannsóknarinnar var að greina með spurningakönnun og stuttum viðtölum við þátttakendur hver áhrif efnahagshrunsins árið 2008 og nýrra skipulagslaga væru á samráð við íbúa og hagsmunaaðila við gerð aðalskipulags. Niðurstöður benda til þess að áhugi íbúa á skipulagsgerð hafi ekki aukist, hvorki í tengslum við hrunið né setningu nýrra skipulagslaga. Íbúaþátttaka virðist heldur ekki hafa aukist, en aftur á móti hafa aðferðir og möguleikar til þátttöku breyst mikið eftir að ný skipulagslög tóku gildi. Íbúar koma nú með nýjum lögum mun fyrr inn í ferlið og hafa mun fleiri tækifæri til ákvarðanatöku en áður. Einnig kemur skýrt fram að þættir eins og ný sveitarstjórnarlög sem tóku gildi 2012 veita sveitarstjórnum mikið aðhald og hvatningu til íbúaþátttöku og upplýsingagjafar til íbúa. The main task of this paper is the effect that the economic collapse and new planning and building act have had on citizen influence in spatial planning. A major criticism has been on the decision-making by the local government after the economic collapse in Iceland 2008 and great changes have taken place in the duties of the local government to involve residents in decision making. This study uses a combination of quantitative and qualitative research methods. The aim of the study was to answer how citizen influence on spatial planning have been influenced by the economic collapse in 2008 and the new planning and building act from 2010. Data was collected using survey and ... |
---|