Hvernig vinna PMT og SMT gegn agavandamálum barna
Ritgerð þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild í Háskólanum á Akureyri vorið 2008. Ritgerðin er heimildaritgerð og fjallar um hvernig PMT og SMT taka á hegðunarvanda barna. Ritgerðin skiptist upp í sex kafla. Fyrsti kaflinn fjallar um aga almennt, aga í skólum og hegðunarv...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2008
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/1683 |
Summary: | Ritgerð þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild í Háskólanum á Akureyri vorið 2008. Ritgerðin er heimildaritgerð og fjallar um hvernig PMT og SMT taka á hegðunarvanda barna. Ritgerðin skiptist upp í sex kafla. Fyrsti kaflinn fjallar um aga almennt, aga í skólum og hegðunarvanda barna. Í öðrum kaflanum er fjallað um umbun og refsingu og notkun umbunarkerfa. Þegar komið er að þriðja kafla fjöllum við ítarlega um PMT – foreldrafærni og enn ítarlegar í fjórða kafla þar sem tekin eru fyrir öll þau verkfæri sem PMT – foreldrafærni notast við. Í fimmta kaflanum segjum við frá SMT – skólafærni og hvernig innleiðing hennar í skóla fer fram. Sjötti kaflinn er svo umræðukafli þar sem við komum okkar skoðunum á framfæri og gagnrýnum aðferðirnar eftir bestu getu. PMT- foreldrafærni og SMT- skólafærni eru fremur nýjar aðferðir sem hafa verið innleiddar í Hafnarfirði frá því árið 2000 og hófst innleiðing á Akureyri árið 2006. Þar sem innleiðing þessara aðferða er hafin í meirihluta leik- og grunnskólum Akureyrar fannst okkur áhugavert að kynna okkur þessi agastjórnunarkerfi til hins ítrasta. |
---|