Öryggismál í ferðamennsku á hálendi Íslands : öryggismál í ljósi landslagsgerðar, afþreyingar og tegundar ferðamanna

Verkefnið er lokað til 15.9.2014. Straumur bæði erlendra og innlendra ferðamanna inn á hálendi Íslands eykst jafnt og þétt. Náttúrutengd ferðamennska eins og fjallgöngur, náttúruskoðun og ýmis konar afþreying, tengd því landslagi sem hálendið skartar, er fjölbreytt. Í ljósi þess mikla áhuga ferðaman...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hans Kristjánsson 1956-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16744
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 15.9.2014. Straumur bæði erlendra og innlendra ferðamanna inn á hálendi Íslands eykst jafnt og þétt. Náttúrutengd ferðamennska eins og fjallgöngur, náttúruskoðun og ýmis konar afþreying, tengd því landslagi sem hálendið skartar, er fjölbreytt. Í ljósi þess mikla áhuga ferðamanna á hálendinu er ekki óeðlilegt að spyrja sig hvernig öryggismálum ferðamanna sem heimsækja þetta svæði er háttað. Verkefni þetta fjallar um öryggi ferðamanna á hálendinu við Kjalveg. Gengið er út frá ákveðinni flokkun/líkani sem byggist á tengingu landslagsgerðar og tegundar ferðamanna, ferðamáta þeirra og afþreyingu. Landslagsgerðinni sem þetta verkefni nær til er lýst. Rýnt er í öryggismálin út frá þeim aðilum sem að þeim koma og hlutverki þeirra. Staða öryggismála er varðar hálendið sett í samhengi við þá flokkun sem verkefnið grundvallast á og í samhengi við könnun sem höfundur framkvæmdi í Kerlingarfjöllum sumarið 2013. Öryggismál á hálendi Íslands hafa verið ofarlega í umræðunni undanfarið. Nokkur alvarleg slys á síðustu árum hafa ýtt við þeim aðilum sem að þessari tegund ferðamennsku koma hér á landi og átak hefur verið gert á ýmsum sviðum öryggismála. Það er niðurstaða þessa verkefnis að víða er pottur brotinn og mikilvægt að gefa þessum þætti ferðamennsku á Íslandi, öryggismálunum, enn frekari gaum. There are more and more tourists, both guests and local inhabitants, visiting the highlands in Iceland. Nature based tourism like mountaineering, nature exploring and different kind of activity related to the surroundings in the highlands, are of many kinds. In the view of the great interest by tourists who visit the highlands it is relevant to look closer at safety matter related to that kind of tourism. This essay mainly looks at the safety matter of tourists visiting the highland Kjölur. It is based on a model which is built on relation between the form of the landscape the tourist is visiting, the way of travel and their activity. The landscape involved is described. Safety matters is looked at by ...