Summary: | Ritgerð þessi er lokaverkefni mitt til B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallar um rannsókn á því hvernig karlkennurum í grunnskólum líður í vinnunni. Gengið var út frá því að karlkennarar tilheyrðu minnihlutahópi á vinnustaðnum eins og upplýsingar frá Hagstofu Íslands gáfu til kynna. Fáar íslenskar heimildir voru til að styðja við rannsóknina, en aðallega var stuðst við erlenda rannsókn sem fjallað er um í bókinni Real Men or Real Teachers eftir Paul Sargent frá árinu 2001. Fyrir þessa rannsókn voru tekin viðtöl við karlkennara sem störfuðu sem umsjónarkennarar á yngsta stigi grunnskóla í Reykjavík. Helsta niðurstaðan var sú að karlkennurum liði vel í starfi sínu, þrátt fyrir að tilheyra minnihlutahópi. Þeir voru ágætlega sáttir við sinn hlut en í umræðunum koma svo fram vangaveltur um hvort að þeir séu ánægðir, eða hvort að þeir hafi í raun sætt sig við aðstæður. Einnig er sett fram áskorun til skólayfirvalda og sveitarfélaga að þörf sé á að breyta ímynd starfsins.
|