Summary: | Tilgangur þessarar rannsóknar var að undirbúa stöðlun stuttu útgáfu greindarprófs Wechslers (WASI) fyrir fullorðna á Íslandi og kanna próffræðilega eiginleika þess hér á landi. Prófið var lagt fyrir 241 einstakling á aldrinum 17-64 ára sem voru valdir með hentugleika í lagskiptu kvótaúrtaki sem skiptist eftir búsetu, kyni, aldri og menntun. Helstu niðurstöður voru að prófið hafði sömu þáttabyggingu í íslensku úrtaki og í bandarískri útgáfu. Þyngdarröð atriða þriggja undirprófa breyttist talsvert miðað við bandaríska útgáfu prófsins. Þyngdarröð 80% atriða breyttist í Rökþrautum, 46% í Líkingum og 30% í Litaflötum. Samanborið við fyrirlagnarröð í íslenskri handbók breyttist þyngdarröð atriða í Rökþrautum, Orðskilningi og Líkingum einnig mikið. Almennt var áreiðanleiki allra undirprófa lægri en í Bandaríkjunum. Helmingunaráreiðanleiki var góður á undirprófinu Orðskilningur og nálægt því að vera viðunandi á Rökþrautum en var lægri á Litaflötum og Líkingum. Samkvæmni í mati fjögurra matsmanna á undirprófinu Líkingar var mjög góð og sambærileg áreiðanleika í upprunalegri útgáfu prófsins. Það bendir til þess að fyrirlögn og fyrirgjöf sé stöðug og áreiðanleg. Niðurstöður benda til að stoppreglur í bandarískri handbók eigi við í þremur undirprófum en herða þurfi stoppreglu á Orðskilningi og endurmeta reglur um viðbótarstig á Litaflötum. Almennt eru sömu aldursbil viðeigandi hér á landi og í upprunalandi prófsins. Sjá mátti áhrif menntunar á frammistöðu þátttakenda en ekki kom fram munur eftir kyni. Þegar bandarísk norm voru notuð til að túlka niðurstöður ofmat prófið verklega greind en vanmat munnlega greind próftaka. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að próffræðilegir eiginleikar WASI séu almennt ásættanlegir og að prófið uppfylli skilyrði til stöðlunar hér á landi. To prepare the standardization of the Wechsler Abbreviated Scale of Intelligence (WASI) for adults in Iceland we investigated its psychometric properties. The WASI was administered to a stratified quota sample of 241 indviduals aged 17–64 years, ...
|