Summary: | Fyrsta Iceland Airwaves hátíðin var haldin árið 1999 í flugskýli Icelandair í Vatnsmýrinni. Síðan þá hefur hátíðin vaxið jafnt og þétt og er nú haldin á hinum ýmsu stöðum í miðborg Reykjavíkur. Hátíðin hefur sitt sérkenni á meðal tónlistarhátíða víða um heim en Rolling Stone tímaritið kallaði Iceland Airwaves; „the hippiest long weekend on the annual music-festval calendar.“ Eitt helsta einkenni þessarar hátíðar er að þeir listamenn sem koma þar fram eru margir hverjir á barmi heimsfrægðar, og tilheyra margir hverjir ákveðinni jaðartónlistarstefnu. Sem dæmi um listamenn sem hafa náð heimsfrægð eru Florence and the Machine, Flaming Lips, Bloc Party og Fatboy Slim svo einhverjir séu nefndir. Íslenskir listamenn fá þarna tækifæri til að koma sér á framfæri enda fylgir þessari hátíð fjöldinn allur af blaðamönnum, umboðsmönnum og útgefendum. Listamenn eins og Sigur Rós, Gus Gus, Seabear, FM Belfast og Singapore Sling hafa öll troðið upp á þessari hátíð. Björk hefur einnig komið þarna fram og ekki má gleyma nýjasta óskabarni þjóðarinnar, Of Monsters and Men. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort samfélagslegur ábati hljótist af þessari hátíð. Einnig vill höfundur finna tekjumargfaldarann af erlendum gjaldeyri tónlistagesta. Leynt og ljóst vill höfundur ennfremur varpa ljósi á að margbreytilegur atvinnuvegur í íslenska hagkerfinu er samfélaginu til góða til lengri tíma litið. Notar höfundur nokkra aðra stórviðburði til samanburðar við Iceland Airwaves, eins og Hróarskeldu og Reading tónlistarhátíðarnar, heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu og Ólympíuleikana í London. Það skiptir nefnilega miklu máli hvernig svona stórviðburðir hafa áhrif á hagkerfið bæði til skamms tíma og ekki síður til langs tíma. Mikilvægt er að stórir fjármagnsstofnar séu með tryggt tekjuflæði eftir byggingu þeirra, en um þetta hefur verið rætt eftir byggingu gríðarstórra leikvanga í tengslum við HM og/eða EM í knattspyrnu. Það eru tvær megin aðferðir til að gera kostnaðar-og ábatagreiningu. Ex ante er venjuleg greining sem er beitt áður en ...
|