Lestur er lykill að framtíðinni : rannsókn á námserfiðleikum nemenda í 10. bekk

Í þessari rannsókn var sendur spurningalisti á alla grunnskóla landsins, þar sem nemendur stunda nám í 10. bekk. Meginviðfangsefni rannsakanda var annars vegar að kanna tíðni greindra tilfella á lesblindu (dyslexíu) og hins vegar tíðni greindra tilfella á sértækum lesskilningserfiðleikum, ásamt kynj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Aðalsteinsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
ADD
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16291
Description
Summary:Í þessari rannsókn var sendur spurningalisti á alla grunnskóla landsins, þar sem nemendur stunda nám í 10. bekk. Meginviðfangsefni rannsakanda var annars vegar að kanna tíðni greindra tilfella á lesblindu (dyslexíu) og hins vegar tíðni greindra tilfella á sértækum lesskilningserfiðleikum, ásamt kynjaskiptingu þar að lútandi. Jafnframt var kannað hvort greind tilfelli af ADD, ADHD eða sértækri málþroskaröskun væru einnig til staðar, samhliða lestrarerfiðleikum. Í könnuninni var einnig boðið upp á eina opna spurningu. Þar gafst svarendum tækifæri til þess að tjá sig um þennan málaflokk innan síns skóla, hvernig staðan er almennt að þeirra mati. Jafnframt var innt eftir því hvaða greiningartæki skólarnir notuðu við greiningar á lestrarerfiðleikum. Aldrei fyrr hafa upplýsingar um tíðni lestrarörðugleika á Íslandi verið teknar saman á kerfisbundinn hátt og því hefur menntakerfið haft takmarkaða yfirsýn yfir umfang vandans. Slík yfirsýn er mikilvægur grundvöllur þess að hægt sé að stuðla að markvissari úrræðum til þess að efla velferð barna og unglinga sem glíma við erfiðleika í (lestrar)námi. Helstu niðurstöður gefa til kynna að tíðni lesblindu sé tæp 16% og lesskilningserfiðleika rúm 5%. Tíðni samhliða raskana með lesblindu (dyslexíu) er á milli 12% og 18% en tíðni samhliða raskana með sértækum lesskilningserfiðleikum er töluvert algengari eða á milli 14% og 28%. Athygli vekur hve mörg og ólík greiningartæki eru notuð við að lestrargreina íslensk grunnskólabörn og hve umdeild sum þeirra eru. The present study involved sending questionnaire to all elementary schools in Iceland, teaching 10th grade. The researcher’s main task was to investigate, on the one hand, the prevalence of diagnosed cases of dyslexia and, on the other, the prevalence of diagnosed specific reading comprehension difficulties. At the same time it was investigated whether diagnosed cases of ADD, ADHD and/or specific language impairment were also present alongside reading difficulties. The study also included one open question and about what ...