Summary: | Í þessu verkefni eru teikningar af 204m2 timburhúsi á steyptum sökkli með innbyggðri bílageymslu og tveimur samliggjandi svefn-herbergjum sem auðvelt er að sameina í eitt. Teikningasettið samanstendur að aðalupp-dráttum, þar af skráningartöflu, byggingar-uppdráttum, burðarvirkisuppdráttum og lagna-teikningum. Í skýrslu sem fylgir með teikninga-settinu eru nákvæmar verklýsingar, tilboðs og kostnaðaráætlun, verkáætlun, burðarþols-útreikningar, varmatapsútreikningar, lagna-útreikningar, þakrennu og niðurfallsútreikningar og útreikningar á loftun þaksins. Einning er útfyllt umsókn um byggingarleyfi, hæðar og mæliblöð ásamt gátlista byggingarfulltrúa.
|