Takmarkanir á endurskoðunarvaldi dómstóla vegna pólitískra álitaefna í Bandaríkjunum og á Íslandi

Í þessari ritgerð er leitast við að skoða hvort að sambærileg sjónarmið eigi við á Íslandi og í Bandaríkjunum varðandi takmarkanir á endurskoðunarvaldi dómstóla vegna pólitískra álitaefna (e. the Political Question doctrine). Er í þeim tilgangi skoðuð þau fræði sem liggja að baki endurskoðunarvaldi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnar Ingi Ágústsson 1987-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15952
Description
Summary:Í þessari ritgerð er leitast við að skoða hvort að sambærileg sjónarmið eigi við á Íslandi og í Bandaríkjunum varðandi takmarkanir á endurskoðunarvaldi dómstóla vegna pólitískra álitaefna (e. the Political Question doctrine). Er í þeim tilgangi skoðuð þau fræði sem liggja að baki endurskoðunarvaldi dómstóla í Bandaríkjunum og er áherslan lögð á að skoða kosti og galla endurskoðunarvaldsins. Sérstaklega er fjallað um þann lýðræðishalla sem endurskoðunarvaldið er talið hafa í för með sér en umræddri takmörkun er að einhverju leyti ætlað að rétta af þann halla. Beiting þessa takmörkunar er síðan skoðuð en til þess eru notaðir dómar Hæstaréttar Bandaríkjanna, en rétturinn hefur sjálfur skilgreint takmörk endurskoðunarvaldsins. Sérstök áhersla er lögð á Hæstaréttardóm Baker v. Carr, en þar skilgreindi Hæstiréttur fyrst hverskonar mál falla undir þessa takmörkun, og beitingu réttarins á þeim skilyrðum í málum sem hafa fallið síðan mál Baker v. Carr var ákveðið. Undir lok þriðja kafla er síðan kannað hvort að beiting Hæstaréttar Bandaríkjanna á þessari takmörkun hefur bætt úr þeim lýðræðishalla sem henni er ætlað að gera. Í fjórða kafla er síðan skoðað hvernig endurskoðunarvald dómstóla hefur komið fyrir í íslenskum fræðum. Síðan er kannað ítarlega hvernig viðhorf Hæstaréttar Íslands hefur verið til endurskoðunarvalds dómstóla og hvort að sambærileg sjónarmið eigi við á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þau skilyrði sem Hæstiréttur Bandaríkjanna lagði upp með í Baker v. Carr eru síðan heimfærð á þá íslensku Hæstaréttardóma sem hafa verið reifaðir og kannað hvort beiting íslenskra dómstóla á takmörkunum á endurskoðunarvaldi dómstóla spegli að einhverju leyti þær hugmyndir sem liggja að baki þessari takmörkun. This thesis deals with the limitation on judicial review that exists in Iceland and the United States. The purpose of this thesis is to examine whether the ideas behind the Political Question doctrine exist in Iceland and how the Icelandic Supreme Court has implemented those ideas. To that purpose this thesis will ...